Hughes: Roque Santa Cruz er nógu góður fyrir Manchester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. september 2009 17:30 Roque Santa Cruz fagnar því að vera kominn til Manchester City. Mynd/AFP
Mark Hughes, stjóri Manchester City, segir að paragvæski framherjinn Roque Santa Cruz, eigi framtíð hjá félaginu þrátt fyrir að hafa ekki spilað sinn fyrsta leik síðan að City keypti hann á 17,5 milljónir enskra punda frá Blackburn í sumar. Roque Santa Cruz spilar væntanlega með liðinu á móti West Ham í kvöld. „Ég er ánægður með möguleikana sem hann gefur okkur," sagði Mark Hughes sem skipulagði æfingaleik á móti Wrexham til þess að skoða leikformið hjá Santa Cruz. Hann hefur ekkert leikið síðan í mars vegna hnémeiðsla. „Hann er stór strákur og lætur finna fyrir sér. Það er mikilvægt fyrir okkur því við erum ekki með marga stóra leikmenn framarlega á vellinum. Roque Santa Cruz er nógu góður fyrir Manchester City," sagði Hughes sem keypti Santa Cruz einnig til Blackburn á sínum tíma. „Ég eyddi í hann öllum peningnum sem ég hafði til leikmannakaupa á sínum tíma. Það sýnir vel hversu mikið álit ég hef á honum. Hann stóð sig frábærlega hjá Blackburn og þarf ekki nema endurtaka nema helminginn af því til þess að sanna að þetta voru góð kaup," sagði Hughes. Carlos Tevez, Craig Bellamy og Emmanuel Adebayor eru vissulega á undan Roque Santa Cruz í goggunarröðinni en það Paragvæinn ætlar örugglega að nýta tækifærið sitt á móti West Ham í lokaleik sjöundu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Landsliðsmaður handtekinn í London Enski boltinn Dómsmál vegna andláts Sala hefst í dag Fótbolti Fleiri fréttir Goðsögn Manchester United segir að félagið sé að eyðileggja Mainoo Búist við að Salah verði hent úr hóp Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Sjáðu markið sem West Ham-menn sáu tvær ástæður til að dæma af Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Landsliðsmaður handtekinn í London Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Guéhi hetjan og Palace upp í fjórða sæti Hópslagsmál á vellinum: „Áður en ég vissi af flugu hnefar út um allt“ Hömrunum heitt í hamsi eftir dramatík Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Karólína lagði upp en Hlín meiddist Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Kominn með nóg og vill fara frá United Fyrrum eigandi Liverpool látinn Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Sjáðu mörkin: Guimaraes beint úr horni, dramatík hjá Liverpool og öll hin Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot „Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ Hádramatík í sex marka leik Aftur aflýst hjá Andra vegna bleytu Everton í fimmta sæti og langþráður sigur Spurs Varnarmenn City í stuði og aðeins tvö stig í Arsenal Þriðji í röð án sigurs hjá Chelsea Salah enn á bekknum Hádramatík í lokin á Villa Park Hagaði sér eins og MMA-bardagahetja í fótboltaleik Hislop með krabbamein Van Dijk um bekkjarsetu Salah: „Allir þurfa að standa sig“ Sjá meira