Hefur selt 150 þúsund bækur í Þýskalandi 28. september 2009 05:00 Viktor ásamt kertastjökunum sem koma við sögu í nýjustu bók hans. fréttablaðið/anton
Nýjasta glæpabók Viktors Arnars Ingólfssonar, Sólstjakar, kemur í verslanir 1. október. Bókin kemur út í Þýskalandi í vor á vegum útgefandans Lübbe, hins sama og gefur út bækur Arnaldar Indriðasonar þar í landi. „Þýskaland er annar eða þriðji stærsti bókamarkaður heims og þar koma út níutíu þúsund titlar á ári. Bara það að komast í bókabúðirnar er afrek í sjálfu sér,“ segir Viktor, sem hefur selt bækur sínar í um 150 þúsund eintökum þar í landi. Sólstjakar, sem skartar sömu aðalpersónum og í Aftureldingu, átti upphaflega að gerast eingöngu í sendiráði Íslands í Berlín. „Það var hugmynd sem vaknaði árið 2000 þegar ég fór til Berlínar og fékk að heimsækja sendiráðið þar,“ segir Viktor. „Þarna var mjög flott sögusvið til að vinna með en þegar fléttan fór að þroskast varð alltaf minna og minna úr þeim þætti.“ Útgefanda Viktors í Þýskalandi var létt þegar hann frétti af breyttu sögusviði bókarinnar. „Þýski markaðurinn er mjög mikilvægur og hún var lítið hrifin af því að fá sögu sem gerist í Þýskalandi. Þau eru að fiska eftir glæpasögu sem gerist meira og minna á Íslandi því þau eiga nóg af glæpasögum sem gerast í Berlín.“ Kertastjakarnir tveir sem koma við sögu í bókinni eiga sér skemmtilega forsögu. Leirlistakonan Margrét Jónsdóttir fékk nokkra höfunda, þar á meðal Viktor, til að skrifa fyrir hana lýsingu á leirlistagripum. „Ég var að skrifa einn af upphafsköflunum í bókinni og það passaði vel að vera með tvo stóra kertastjaka og ég sendi henni lýsingu á þeim. Það er karlkyns leirlistamaður í sögunni sem á að hafa gert þessa stjaka. Hann kallar þá sólstjaka og þaðan er nafnið komið,“ segir Viktor sem festi síðan sjálfur kaup á stjökunum. „Það er gott að hafa þá við höndina og ég held líka að ég hafi fengið smá afslátt.“ - fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Nicole er fyrir norðan Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Sjá meira