Mestar hækkanir í Hagkaupum og Nóatúni 29. maí 2008 11:19
Verðlagseftirlit ASÍ birtir nú breytingar á verði innkaupakörfu heimilisins í stærstu matvöruverslunarkeðjunum 7. vikuna í röð. Í könnuninni kemur fram að mest hækkun á vörukörfu ASÍ milli vikna að þessu sinni hafi verið í stórmörkuðunum Hagkaupum og Nóatúni. Í Hagkaupum hækkaði verð körfunnar um 2,1% á milli 3. og 4. viku í maí segur ASÍ að það megi rekja þá hækkun að mestu til hækkana á verði kjötvara og grænmetis og ávaxta í vörukörfunni. Í Nóatúni hækkaði verð innkaupakörfunnar um 1,9% á milli vikna og valda hækkanir á verði grænmetis og ávaxta þar mestum breytingum að því er fram kemur hjá ASÍ. „en einnig hækkun á kjöt- og mjólkurvörum. Í Samkaupum-Úrval sem einnig er í flokki stórmarkaða var verð vörukörfunnar nánast óbreytt á milli vikna." „Í lágvöruverðsverslunum hækkaði verðið á vörukörfu ASÍ mest í Kaskó, um 1,3%, á milli mælinga í 3. og 4. viku maímánaðar," segir ennfremur. „Mest áhrif til hækkunar hefur verðhækkun á brauði og kornvörum, mjólkuvörum og á liðnum ýmsar matvörur í vörukörfunni. Í Krónunni breyttist verð körfunnar lítið á milli vikna eða um 0,3% og í Nettó var verðið óbreytt á milli mælinga. Verð innkaupakörfunnar lækkaði hins vegar í Bónus um 0,7% á milli vikna sem má að mestu leyti rekja til lækkunar á verði kjötvara í körfunni." Þá segir að í klukkubúðunum svokölluðu hafi vörukarfan hækkað mest í verslunum 10-11 um 1,1% á milli vikna „og veldur hækkun á verði kjötvara þar mestum breytingum en einnig hefur verðhækkun á drykkjarvörum í körfunni nokkur áhrif. Í 11-11 er verð vörukörfunnar nánast óbreytt á milli vikna en í Samkaupum-Strax lækkar verðið hins vegar um 1,7% sem að langstærstum hluta stafar af lækkun á kjötvörum í innkaupakörfunni." Nánar má kynna sér efni könnunarinnar hér.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira