Samið við ríkisstjórn Djíbúti um hagkvæmnisathugun á nýtingu jarðhita 14. apríl 2008 17:24
Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Reykjavik Energy Invest og ríkisstjórnar Afríkuríkisins Djíbútí um gerð ítarlegrar hagkvæmniathugunar á nýtingu jarðhita í landinu. Athugunin felur meðal annars í sér borun rannsóknarborhola og er ætlunin að fjármagna hana með fé frá IFC, fjármögnunarsjóði Alþjóðabankans, og EIB, Evrópska fjárfestingabankanum. Einnig felur samkomulagið í sér ákvæði um tilhögun leyfisveitinga, raforkusölu og tolla- og skattamála, reynist nýting jarðhitans í Djíbútí hagkvæm. Leiði athugun til jákvæðrar niðurstöðu verður skoðað hvernig ráðast megi í framkvæmd verkefnisins í samvinnu við áhugasama fjárfesta. „Rannsóknarboranir í Djíbútí geta hafist undir lok ársins og er markmið þeirra að staðfesta tilvist virkjanlegs jarðhita og rannsaka eðliseiginleika jarðhitavökvans. Vísbendingar eru um að efnainnihald hans sé óhagstæðara en Orkuveita Reykjavíkur býr við á Hengilssvæðinu, en líkara því sem er að finna t.a.m. á Reykjanesi. Þá fóru einnig utan sérfræðingar Orkuveitu Reykjavíkur á sviði umhverfismála og umhverfismats og er REI að vinna ýtarlega skýrslu um umhverfisþætti verkefnisins. Á ferð sinni ytra kynntu stjórnarmenn og stjórnendur REI sér einnig möguleika á jarðhitanýtingu í Jemen og í Eþíópíu, en á hvorugum staðnum var um fjárhagslegar skuldbindingar að ræða. Í Jemen var skrifað undir minnisblað um frekari viðræður milli REI og orkufyrirtækis jemenska ríkisins. Sambærilegt minnisblað var undirritað í Eþíópíu í janúar síðastliðnum," segir í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Kjartan Magnússon stjórnarformann REI.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira