Innlent

Eldur í íbúð við Stigahlíð

Maður var fluttur á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í íbúð hans í fjölbýlishúsi við Stigahlíð í Reykjavík laust fyrir miðnætti. Hann var einn í íbúðinni og mun vera á batavegi.

Slökkvistarf gekk vel en skemmdir urðu vegna reyks. Íbúar í öðrum íbúðum við stigaganginn voru ekki í hættu. Eldsupptök eru ókunn en málið verður rannsakað nánar í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×