Innlent

Brýnt að mæta vaxandi þörf fyrir leiguhúsnæði

Jórunn Frímannsdóttir.
Jórunn Frímannsdóttir.

Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir brýnt að mæta vaxandi þörf fyrir leiguhúsnæði í borginni. Þetta kom fram í máli Jórunnar á borgarstjórnarfundi sem nú stendur yfir.

Í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins segir að Jórunn hafi á fundinum greint frá því að meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarmanna í velferðarráð Reykjavíkurborgar hafi lagt það til að auglýst verði eftir leiguíbúðum á almennum markaði til endurleigu fyrir þá sem eru á biðlista eftir húsnæði á vegum Velferðasviðs. „Hún greindi einnig frá því að á vettvangi velferðarráðs færi fram góð samvinna meirihluta og minnihluta ráðsins um útfærslu tillögunnar. Jórunn segir tillöguna koma til móts við þá sem eru í húsnæðisvanda og eru á biðlistum eftir húsnæði hjá Félagsbústöðum."

Þá segir að meirihluti Velferðaráðs Reykjavíkur hafi lagt til á fundi sínum 26. nóvember síðastliðinn að Félagsbústaðir auglýstu eftir leiguíbúðum á almennum markaði til endurleigu fyrir þá sem eru á biðlista eftir húsnæði hjá Velferðarsviði. „Tillagan felur í sér að leitað verði eftir tilboðum frá eigendum íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu sem uppfyllir þau skilyrði sem Félagsbústaðir hf gera til íbúðarhúsnæðis. Um geti verið að ræða fjölbreytta stærð og gerð leiguhúsnæðis auk íbúða fyrir eldri borgara. Leitast verði við að tryggja félagslegan fjölbreytileika við val á húsnæði."

Sviðsstjóra Velferðarsviðs og Framkvæmdastjóra Félagsbústaða hf. yrði falið að útfæra auglýsingu og reglur um leigu og leigusamninga. Reglur um leigu og gerð leigusamninga kæmu til samþykktar velferðarráðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×