Opna fasteignasölu á meðan aðrir loka Breki Logason skrifar 23. maí 2008 15:46 Systurnar Telma og Hrönn Róbertsdættur á fasteignasölunni Húsin í borginni.
Telma Róbertsdóttir segist í hreinskilni aldrei hafa verið neitt sérstaklega í takt við alla hina. Í dag stendur hún undir nafni og opnar fasteignasölu ásamt systur sinni. Telma hefur verið fasteignasali í fimm ár og hefur lengi haft þann draum að opna eigin sölu. Opnunarpartý fasteignasölunnar, Húsin í borginni, verður haldið niður á Klapparstíg 5 klukkan 17:00 í dag. „Við systurnar erum að opna þetta, hún er reyndar tannlæknir og verður því lítið á sölunni. Við eigum þetta samt saman og munum opna með pompi og prakt í dag, við ætlum ekki að loka eftir þrjá mánuði," segir Telma sem horfir jákvæðum augum á fasteignamarkaðinn. „Fólk þarf alltaf að kaupa og selja fasteignir. Og þó ástandið sé erfitt núna þá á það eftir að breytast. Þegar maður hefur svona mikinn kraft og er jákvæður þá gengur allt upp hjá manni." Telma viðurkennir að það hafi verið ákveðið fyrir nokkru síðan að opna söluna og þegar þær voru farnar af stað og búnar að kaupa húsnæðið var ekki aftur snúið. „Maður er ekkert að gráta í koddann þó þetta sé svona. Við ætlum bara að blása lífi í þetta og halda áfram." Fasteignasalan ber nafnið, Húsin í borginni, og var það eiginmaður Telmu sem stakk upp á nafninu. Opnunarpartýið hefst á slaginu klukkan 17:00 og er búið að tjalda og gera allt tilbúið. „Veðrið er ágætt en við erum með einhverja hitara og svona," segir Telma eldhress að lokum.
Mest lesið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Lífið Fleiri fréttir Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Sjá meira