Deilt um fundartíma á Alþingi 23. maí 2008 11:20 MYND/GVA
Þingmenn Vinstri - grænna og Framsóknarflokks deildu hart á forseta Alþingis við upphaf þingfundar í dag vegna óvissu um lengd þingfundar. Starfandi þingforseti, Einar Már Sigurðarson, lagði fram tillögu um að þingfundurinn gæti staðið þar til dagskrá hans væri tæmd. Þingmenn Vinstri - grænan vildu hins vegar vita hversu langur yrði og bentu á að forseti þingsins, Sturla Böðvarsson, hefði lýst því yfir að næturfundir ættu að heyra sögunni til. Bentu þeir á að þingfundur hefði í staðið til þrjú í nótt og spurðu hvort fundurinn í dag ætti að standa fram á nótt. Þá sagði Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, að umdeild mál væru nú til umræðu, þar á meðal frumvarp um framhaldsskóla sem stjórnin hefði viljað keyra í gegn í nótt. Síðast í gær hefði Félag framhaldsskólanema sent frá sér ályktun þar sem lagt væri fast að þingmönnum að bíða með að samþykkja frumvarpið. Taldi Siv ekki hægt að halda fund til þrjú síðastliðna nótt og fara svo aftur yfir miðnætti í kvöld. Einar Már Sigurðarson, forseti þingsins, vísaði til þingskaparlaga um að forseti gæti lagt fram tillögu um lengd fundartíma án fyrirvara og því væri ekki um neina nýjung að ræða. Hann var þá sakaður um að geta ekki lesið þingsköp og að fara gegn þeim. Í atkvæðagreiðslu um málið var samþykkt að fundurinn stæði þar til dagskrá væri tæmd með 27 atkvæðum gegn 15. Í kjölfar þess spunnust frekari umræður um málið og kröfðust stjórnarandstæðingar þess að fá að vita hversu lengi fundur stæði. Stjórnarþingmenn, þeir Lúðvík Bergvinsson og Bjarni Benediktsson, mótmæltu þeim fullyrðingum Vinstri - grænna að þingfundir um nætur væru ekki heimilir. Hins vegar hefði verið samið um að þeir yrðu gerðir að undantekningu. Það væri því rangtúlkun á þingsköpum að það væru ekki heimildir fyrir því að halda langa þingfundi. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði stjórnarandstöðuna vera með leikrit sem ekki væri samboðið Alþingi. Nýju þingskaparlögin hefðu bætt vinnufyrirkomulag á Alþingi og einungis tvisvar hefðu verið næturfundur frá því að þau tóku gildi. Bað hún þingmenn að vinna eins og manneskjur. Ásakanir um hroka og valdníðslu gengu á vígsl á milli stjórnarliða og stjórnarandstöðu og hófst dagskrá fundar ekki fyrr en um 11.20 eða nærri klukkustund eftir að þingfundur hófst. Einar Már Sigurðarson hefur boðað þingflokksformenn til fundar í hádeginu til þess að reyna að ná sátt um fyrirkomulag þingstarfa á næstunni.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira