Sænskur bankasérfræðingur kemur í stað Ásmundar Stefánssonar 1. desember 2008 16:33 Ásmundur Stefánsson er kominn til starfa fyrir Landsbankann.
Forsætisráðuneytið hefur ráðið til tímabundinna starfa Mats Josefsson, sænskan bankasérfræðing. Mats tekur við þeirri stöðu sem Ásmundur Stefánsson hefur gegnt við uppbyggingu bankakerfisins. Starf þetta er skilgreint í 5. grein samkomulagsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) þar sem segir: „Ákveðið skipulag er komið á við skil yfirteknu bankanna og leiðir til að hámarka heimtur eigna með gagnsæjum hætti. Stefna okkar að þessu leyti hefur verið útfærð nánar að undanförnu. Virtur bankasérfræðingur var skipaður til að stýra endurskipulagningu bankanna. Sérfræðingurinn starfar á vegum forsætisráðherra og ber ábyrgð á að þróa, innleiða og skýra frá heildstæðri aðgerðaáætlun um endurskipulagningu bankanna. Til að samræma stefnu og aðgerðir stjórnvalda hefur verið skipuð nefnd sem bankasérfræðingurinn stýrir og í eiga sæti fulltrúar frá forsætisráðuneyti, Fjármálaeftirliti, Seðlabanka, fjármálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti og viðskiptaráðuneyti." Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu kemur fram að Ásmundur Stefánsson hafi fram að þessu sinnt þessu starfi en þegar hann hafi verið skipaður formaður bankastjórnar Landsbankans hafi verið ákveðið að hann myndi ekki gegna því áfram. Þann tíma sem hann hafi sinnt báðum störfum hafi þess verið gætt að hann hefði ekki haft aðgang að gögnum sem tengist hinum bönkunum. Ásmundur hafi að auki haft yfirumsjón með þeim margvíslegu starfshópum sem starfað hafi í kjölfar bankahrunsins fyrir hönd forsætisráðherra og verið tengliður milli þeirra innbyrðis og gagnvart forsætisráðherra og ríkisstjórn. Þá segir að Mats Josefsson sé reynslumikill bankamaður. „Hann starfaði í 13 ár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en var áður aðstoðarforstjóri sænska fjármálaeftirlitsins og þar á undan forstöðumaður í sænska seðlabankanum. Hann stýrði eftirliti með bankastarfsemi í Svíþjóð á árunum 1990 - 1994 á tímum bankakreppunnar þar og öðlaðist þannig einstaka reynslu sem vonast er til að nýtist Íslendingum við þær aðstæður sem nú eru uppi. Josefsson lék sömuleiðis stórt hlutverk í milligöngu AGS í uppbyggingu bæði í Tyrklandi og Tælandi eftir bankakreppu sem þau lönd glímdu við frá því um og eftir aldamótin," segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira