Segist sjálfur hafa lagt fram bókunina gegn Davíð 7. desember 2008 19:42 Össur Skarphéðinsson.
Össur Skarphéðinsson upplýsti í fyrsta skipti að hann sjálfur hefði lagt fram bókun á Ríkisstjórnarfundi sem snéri að því að Davíð Oddsson starfaði ekki í umboði Samfylkingarinnar. Þetta sagði hann í Mannamáli á Stöð 2 í kvöld. Hann sagði einnig að Samfylkingin hefði komið í veg fyrir að Davíð yrði í forystu nokkurskonar neyðarráðs sem átti að halda utan um björgunaraðgerðirnar í efnahagslífinu. Sigmundur Ernir yfirheyrði Össur í þætti sínum og spurði hann meðal annars hvort það væri rétt að Össur Skarphéðinsson hefði barið í borðið þegar upp kom tillaga um að Davíð yrði í neyðarráði embættismanna. „Það sem er rétt í þessu er að á ákveðnu skeiði í þessari fyrstu lotu var gerð tillaga um nokkurskonar ráð sem skipað yrði fjórum ráðherra og forsætisráðherra myndi veita því forstöðu. Þessi nefnd átti að halda utan um og stýra þessu björgunarstarfi. Það er einnig rétt að það kom fram tillaga um að ákveðnir embættismenn lægju fyrir neðan þessa ráðherra. Tillagan gekk út á það að aðalbankastjóri Seðlabankans yrði þar í forstöðu. Samfylkingin hinsvegar vildi það ekki og hafnaði á þessum fundi," sagði Össur. Hann staðfesti einnig að hann sjálfur hefði látið bóka á Ríkisstjórnarfundi að Davíð Oddsson starfaði ekki í umboði Samfylkingarinnar. Össur sagði Davíð vera í pólitík og því ætti hann ekki að gegna starfi seðlabankastjóra. Í Seðlabankanum ættu að vera hæfir hagfræðingar rétt eins og Samfylkingin hefði lagt til þegar lögunum var breytt. „Davíð Oddsson er í bullandi pólitík. Hann er ekki bara í pólitík heldur er hann aðallega að beita sér gegn sínum eigin flokki og skrattast út í forystu flokksins. Hann hótar því að ef Alþingi kæmist að þeirri lýðræðislegu niðurstöðu að breyta ætti um skipulag bankans og hafa einn yfirmann sem yrði ekki Davíð Odsson, þá fari hann í pólitík. Hann er að ógna forystu Sjálfstæðisflokksins, það er ekki hægt að hafa Seðlabankastjóra sem hefur jafn virk afskipti af stjórnmálum og hann gerir," sagði Össur. Hann sagði síðan að það ætti eftir að koma í ljós hvort Davíð myndi lifa þetta af. Össur varði samflokksmann sinn og viðskiptaráðherra, Björgvin G. Sigurðsson þegar talið barst að því hversvegna enginn hefði sagt af sér. Hann sagði að mikilvægt hefði verið að hafa jafn ungan og vaskann mann í brúnni fyrstu dagana eftir hrunið, sem væri fljótur að hugsa. Hann sagði að nú færi í gang rannsókn og allir ráðherrar myndu horfast í augu við niðurstöður þeirrar úttektar. „Það eru ákveðnar stofnanir sem brugðust og við þurfum að skoða þær. Einnig hef ég sagt að þeim sem stýra Seðlabankanum hafi orðið á mistök og það á að skipta um í þeirri brú," sagði Össur og nefndi að Fjármálaeftirlitið hefði gert mistök og við því þyrfti að bregðast. Össur sagðist hafa skilning á kröfunni um kosningar og sú spurning ætti að vera uppi á borðinu. „Ég tel að við séum núna búin að klára björgunarleiðangurinn og erum komin í uppbyggingarstarf. Þegar því er lokið einhverntíma á næsta ári vil ég að menn skoði þessa spurningu," sagði Össur sem vildi ekki meina að með þessum orðum væri hann að lýsa yfir þeirri skoðun að kjósa ætti á næsta ári.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Sjá meira