Staða Vilhjálms hefur veikst 11. febrúar 2008 16:14 „
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur fengið á sig ákveðna ágjöf og tekið vissa dýfu við þessar aðstæður. Það hefur hinsvegar ekki komið fram á landsvísu og ég vona að það gerist ekki," sagði Geir H Haarde forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins niður í Alþingishúsi rétt í þessu. Geir ræddi við blaðamenn um mál Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og sagði skynsamlegt hjá Vilhjálmi að fara yfir stöðuna með tilliti til þess hvort hann ætlaði að taka við embætti borgarstjóra. Hann sagðist ekki efast um að sú niðurstaða yrði í þágu borgarinnar. Geir sagði einnig að hann og aðrir forystumenn flokksins myndu styðja Vilhjálm en viðurkenndi að það væri rétt sem fram kom í máli Vilhjálms að staða hans hefði veikst. „Það er ekki hægt að víkja honum úr sæti og ég styð hann meðan hann gegnir þessu starfi." Geir vildi ekki tala um hvað hefði farið á milli þeirra Vilhjálms í persónulegum samtölum en sagði REI skýrsluna ekki leiða neitt nýtt í ljós. Hann sagði þó að Vilhjálmi hefði orðið á ákveðin mistök í ákveðnum sjónvarsþætti. Hann væri þó sjálfur búinn að gera grein fyrir því. Geir vildi ekki svara því hvort hann styddi Vilhjálm í að verða borgarstjóri Reykvíkinga eftir rúmt ár.
Mest lesið Komið að ögurstundu Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Erlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Veður Fleiri fréttir Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Sjá meira