Óskað eftir gögnum um skattamál fyrrv. stjórnarformanns Baugs Heimir Már Pétursson skrifar 11. febrúar 2008 12:15
Ríkislögreglustjóri mun í dag óska eftir því að ríkisskattstjóri afhendi gögn varðandi skattamál fyrrverandi stjórnarformanns Baugs, en Hæstiréttur úrskurðaði á fösudag og Ríkislögreglustjóra væri heimilt að gera húsleit hjá Ríkisskattstjóra til að ná í gögnin. Ríkislögreglustjóri vakti athygli Ríkisskattstjóra á því í tengslum við rannsókn Baugsmálsins árið 2003 að svo virtist sem Óskar Magnússon, fyrrverandi stjórnarformaður Baugs, hefði fengið greiddar 118 milljónir króna á tímabilinu 1998 til 2000 sem ekki hefðu verið gefnar upp til skatts. Ríkislögreglustjóri taldi að mögulega væri um að ræða stórfelldan undandrátt frá opinberum gjöldum. Minni háttar skattalagabrot fyrnast á sex árum en stórfelld brot á tíu árum. Þegar skattayfirvöld tóku á máli Óskars töldu þau stærstan hluta meintra brota vera fyrnd en endurálögðu á hann opinber gjöld vegna 25 milljóna vegna vantaldra tekna árið 2000. Ríkislögreglustjóri telur hins vegar að brotin hafi verið stórfelld og fyrnist því á tíu árum og fór fram á að fá afhent gögn um Óskar frá skattinum sem Ríkisskattstjóri neitaði að afhenda. Þá var farið fram á húsleitarheimild sem Héraðsdómur samþykkti og Hæstiréttur staðfesti svo á föstudag. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra, reiknar með að óskað verði eftir því að gögnin verði afhent í dag. Embættið mun síðan rannsaka hvort ástæða er til að gefa út ákæru vegna þeirra 95 milljóna sem standa út af borðinu þegar tillit hefur verið tekið til endurálagningar skattayfirvalda vegna áðurnefndra 25 milljóna. Helgi Magnús segir að þetta mál verði skoðað í samhengi við önnur skattrannsóknarmál vegna Baugs og reiknar með á vormánuðum komi í ljós hvort ákærur verði gefnar út.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira