Ástþór ætlar ekki í forsetaframboð 27. apríl 2008 09:59
Ástþór Magnússon fyrrum forsetaframbjóðandi birtir mikla auglýsingu í Fréttablaðinu í morgun. Þar fer hann yfir árangur af starfi fyrrum forsetaframboða sinna og ræðir síðan um komandi forsetakosningar í sumar. Ástþór ætlar ekki að taka þátt. Auglýsingin er nokkuð viðamikil en kaflann um forsetakosningar 2008 má sjá hér að neðan. Þar talar Ástþór m.a um slagsmál lögreglu við vörubílstjóra, ummæli oddvita yfirkjörstjórnar um hugsanlegt framboð sitt og hvetur loks Ólaf Ragnar til þess að Virkja Bessastaði! Þótt mikilvægur árangur hafi nú þegar náðst eigum við Íslendingar nokkuð í land með að laga garðinn heima hjá okkur til að vera teknir alvarlega á alþjóðavettvangi. Harka stjórnvalda í garð mótmælenda er áhyggjuefni. Það olli t.d. almennri hneykslan víða um heim og meira en tíu þúsund mótmælabréf bárustu stjórnvölum frá þingmönnum og félagasamtökum í meira en 30 löndum þegar ég vera fangelsaður og átti að dæmast í 16 ára fangelsi að beiðni Ríkislögreglustjóra fyrir friðsamleg mótmæli með tölvupósti gegn því að íslenskar flugvélar tækju þátt í vopnaflutningum til ólögmæts stríðsreksturs í Írak. Slagsmál lögreglu við vörubílstjóra síðustu daga minna á að tvo þarft il að deila og að hugsanlega þurfi dómsmálaráðherra, lögreglan og fleiri landsmenn að endurskoða vinnubrögðin. Ég hef t.d. aldrei á minni lífsævi lent í slagsmálum þrátt fyrir að hafa oft notað ögrandi aðferðir við að koma málstaðnum á framfæri svo sumum þykir of um. Þá hefur að undanförnu verið alvarlega vegið að lýðræði á Íslandi. Ummæli oddvita yfirkjörstjórnar stærsta kjördæmis landsins um mitt framboð í fjölmiðlum eru enn til umfjöllunar hjá Lögreglustjóranum í Reykjavík. Áður en tekið hefur verið á því máli af hálfu stjórnvalda í samræmi við stjórnarskrá væru forsetaskosningar í raun sviðsett lýðræði. Hagsmunagæsla einstakra fjölmiðlar fyrir sitjandi forseta hefur verið með þeim hætti í aðdraganda kosninga að hætt er við að framboð mitt á sama tíma og undirbúningur er hafinn hjá Stjórnvöldum og Forsetaembættinu um friðarfund á Íslandi gæti skaðað málstaðinn. Skemmst er að minnast aðför Stöðvar2 í byrjun árs gegn hugsanlegu mótframboði og 2004 þegar hingað komu heimsþekktir fræðimenn í friðarmálum. Þeir voru úthýstir frá Stöð2 og aðrir klipttu úr viðtölum boðskapinn um mitt framboð til að Virkja Bessastaði til friðarmála. Önnur fjölmiðlun var með svipuðum hætti undir bumbuslætti af endalausum lygaþvælum í DV og þannig útilokað að koma boðskap forsetaframboðsins óskekktum til þjóðarinnar. Við ofangreindar aðstæður tel ég heillavænlegast fyrir málstað Friðar 2000 að taka ekki þátt í forsetakosningunum í sumar. Ég skora á Ólaf Ragnar Grímsson að nota nú það einstaka tækifæri sem honum hefur borist á silfurfati frá Palestínu til að Virkja Bessastaði!
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Fleiri fréttir Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Sjá meira