Húsið ruggaði fram og tilbaka, segir Kolbrún sem býr í Peking 12. maí 2008 13:15 Kolbrún hafði áhyggjur af kínverskri vinkonu sinni sem hún kynntist í Peking. "
Ég náttúrulega hafði ekkert heyrt af þessum skjálfta og var ekki alveg viss hvað var í gangi. Hélt fyrst að það væri að líða yfir mig því ég ruggaði öll til. Svo stóð ég upp og þá ruggaði allt húsið fram og til baka eins og einhverjir væru að ýta því á milli sín," svarar Kolbrún Ólafsdóttir nemi við Pekingháskólann í Kína aðspurð um jarðskjálftann í morgun en hún var stödd á 16. hæð í íbúðinni sem hún leigir í Peking þegar skjálftinn reið yfir. "Jú jú ég er í góðu lagi. Ég var smá sjokkeruð svona eftir á en það er liðið hjá. Það var svolítið óhuggulegt þegar þetta var að gerast þá velti ég því alveg fyrir mér hvort þetta 20 hæða hús myndi hrynja með mér innan í. Systir mín og mágur voru að fara í dag frá mér. Flugið þeirra var á sama tíma og skjálftinn leið yfir og svo er ég auðvitað búin að heyra í mömmu og pabba." "Fréttirnar komu frekar seint hérna í Kína og ég var búin að lesa um skjálftann á fréttasíðunum heima áður en ég heyrði fréttir af honum hérna. Þarna fann ég í fyrsta skipti fyrir því að skilja ekki kínversku almennilega því ég gat hvorki fylgst með kínverskum fréttasíðum né sjónvarpsstöðvum. Ég er að bíða eftir að heyra í vinkonu minni sem er að hjálpa mér í kínversku en hún fór í frí heim til foreldra sinna í Sichuan en það er héraðið þar sem skjálftinn átti upptök sín. Ég er svolítið stressuð yfir að heyra ekkert í henni en það hefur einnig komið fram að símakerfið er í lamasessi þarna um slóðir." Að sögn Kolbrúnar er fyrrnefnd kínverska vinkona hennar heil á húfi. "Fjölskyldan hennar er mjög skelkuð og þau þora varla inn í hús af ótta við eftirskjálfta," sagði Kolbrún þegar Visir hafði aftur samband við hana í dag klukkan 15:40.
Mest lesið Jólagjafir íslenskra vinnustaða Lífið Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Menning Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Lífið Jólaboð Evu: Kalkúnabringur með öllu tilheyrandi Matur Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Laufey á landinu Lífið Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Lífið Fleiri fréttir Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Sjá meira