Frikki Weiss stígur sín fyrstu skref á hvíta tjaldinu 29. apríl 2008 13:25 „
Ég fékk pínulítið hlutverk í myndinni í fertugsafmælisgjöf," segir veitinga- og altmuligmaðurinn Friðrik Weishappel. Hann stígur sín fyrstu skref á hvíta tjaldinu á föstudaginn, þegar hann leikur lítið hlutverk í mynd Dags Kára, The Good Heart. „Þetta var á listanum yfir hluti sem mig langar að prófa, ásamt loftbelgsflugi," segir Friðrik. Þegar hann varð fertugur í desember ákváðu vinir hans, þeir Þórir Snær framleiðandi myndarinnar framleiðandi myndarinnar og leikstjórinn Dagur Kári að gefa honum hlutverk að gjöf. Friðrik gat þó strokað fleira út af tossalistanum, því loftbelgferðina fékk hann líka í afmælisgjöf. Friðrik segist ekkert geta gefið upp um hvað atriðið fjallar, enda er handritið hernaðarleyndarmál. Hann leikur þó á móti Brian Cox, einum aðalleikara myndarinnar. Það gæti líklega verið verra, en Cox hefur leikið í myndum á borð við The Bourne Supremacy, Troy og Braveheart. „Auðvitað er þetta byrjunin á stórkostlegum kvikmyndaferli. Maður er búinn með barbransann og tískubransann, og nú er það bara Hollywood," segir Friðrik og hlær. Að öllu gamni slepptu segir Friðrik þó þetta bara vera til gamans gert. Aðal tilgangurinn sé að fá að upplifa kvikmyndatökur einu sinni. „Þær eru mikils virði í lífinu, upplifanirnar."
Mest lesið Viðskila í London eftir að hafa hent vegabréfinu í ruslið Ferðalög Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Lífið „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman Lífið Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Helvítis jólapizzan slær í gegn á Eldofninum Lífið samstarf Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Lífið Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Lífið Þingmaður selur húsið Lífið Fleiri fréttir Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Sjá meira