Segir nýja fjárlagafrumvarpið djarft 11. desember 2008 16:27 Valgerður Sverrisdóttir
Valgerður Sverrisdóttir formaður framsóknarflokksins segir nýtt fjárlagafrumvarp ríkissjórnarinnar vera djarft. Hún segir greinilegt að eitthvað meira sé í pípunum og nefnir orðróm um að fara eigi inn í búvörulögin og lækka laun bænda. Hún segir alvarlegast að verið sé að auka álögur á launafólk. „Það sem er hinsvegar hvað allra mest gagnrýnisvert er að þarna er ekki verið að leggja áherslu á atvinnulífið. Það er ekki verið að halda uppi atvinnu í landinu sem er gríðarlega mikilvægt við þessar aðstæður. Verið er að skerða opinberar framkvæmdir um 11 milljarða, og þar af er helmingurinn í samgöngum sem eru óskaplega mikilvægt byggðamál," segir Valgerður. Valgerður segist gera sér fulla grein fyrir því að Ríkisstjórnin standi frammi fyrir miklum erfiðleikum í ríkisrekstri. „En ég minni á að fyrir ári síðan þegar verið var að vinna að fjárlögum þessa árs þá voru þau þanin út og hækkuð um tæp 20% frá árinu áður. Það sýnir að þegar Samfylkingin komst að kjötkötlunum var bara hugsað um að eyða og það var algjör skortur á aðhaldi." Hún segir dapurlegt að horfa á þessar tillögur en vonar að hægt sé að treysta því að staðinn verði vörður um tekjulægstu hópanna. „Ég verð líka að taka það fram að nú er talað um að mest sé skorið niður í utanríkisþjónustu. En þá er verið að miða við fjárlagafrumvarpið sem lagt var fram 1.október en ekki síðasta árs. Þá varð gríðarleg hækkun í fjárlagafrumvarpinu og það er verið að draga það tilbaka en ekki verið að draga saman samanborið við síðasta ár," segir Valgerður að lokum.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira