Innlent

Síldarsýkingin ekki ný af nálinni

Síld.
Síld. MYND/Export-forum.com

Sjö til átta stórir faraldrar vegna sníkjudýra í fiskum, eins og nú herja á síldarstofninn hér við land, hafa komið upp í Norðurhöfum á síðastliðnum 150 árum, að sögn Matvælastofnunar.

Sníkillinn, sem hefur greinst í síldinni hér getur lagst á fleiri fisktegundir, en dánartíðnin af völdum hans virðist vera langhæst hjá síldinni. Nú eru nokkur síldveiðiskip að veiða sýkta síld í Breiðafirði, en hún fer öll í bræðslu og fara afurðirnar í skepnufóður. Allt smit drepst í brennurum mjölverksmiðjanna, þannig að óhætt er að nota afurðirnar til fiskeldis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×