Bubbi er lúði 6. júní 2008 14:56 Palli, umboðsmaður Bubba, og vaskur aðstoðarmaður slæpa hjólhýsinu inn í Borgarleikhúsið. MYND/Pétur „
Ég er lúði," segir Bubbi Morthens, sem fagnar afmæli og nýútkominni plötu með tónleikum í Borgarleikhúsinu í kvöld. Sviðsmyndin er nokkuð óvenjuleg, en þrjú hjólhýsi verða á sviðinu. „Þetta er bara sviðsmynd. Sumir eru með myndir, blöðrur eða loftskip. Ég er með hjólhýsi frá 1973 frá Seglagerðinni. Það er ekkert lúðalegra en að vera í hjólhýsi," segir Bubbi, sem segir sviðsmyndina hæfa stemningunni á tónleikunum vel. „Þetta er svona lúðaleg stemning." Hann þvertekur þó fyrir að tónlistin á nýju plötunni sinni, Fjórum nöglum, sé nokkuð lúðaleg. „Þetta er ofursvöl tónlist," segir Bubbi, og bætir við að það sé þó nokkur Tarantino „fílingur" á plötunni. Aðspurður hvort lúðar séu nýtt áhugamál segir Bubbi svo ekki vera, þetta sé lífsstíll - og hann innifeli fleira en hjólhýsi. „Hinn fullkomni lúði hann gengur um í hlýrabol," segir Bubbi, sem hefur reyndar sést í ófáum slíkum um ævina. Lýsing Bubba á lúða er orðin skuggalega lík hugmyndum manna um hvítan hjólhýsaskríl í Bandaríkjunum. Hann hefur þó sínar skýringar á uppruna og þróun tegundarinnar. „Ég held að lúðinn hafi upprunalega komið frá Balkanskaganum, og þaðan komist til Vestur-Evrópu og þaðan til Bandaríkjanna. Þar hefur hann dafnað og þroskast í skjóli einangrunar, og þar hefur sérstaklega harðgerður lúðastofn orðið til sem er að finna í Suðurríkjunum." Eins og alþjóð líklega veit er Bubbi að fara giftast unnustu sinni, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur á morgun. Hann þvertekur fyrir að það sé mikið álag að halda stórtónleika á föstudegi og brúðkaup daginn eftir. „Það er ekki stressandi að vera lifandi. Þetta eru bæði kærkomin verkefni og gleðileg."
Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Big Pussy er látinn Lífið Úr verslunarrekstri á „fínni útgáfuna“ af ítalskri knæpu Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Vodafone opnar háhraðaherbergi í Arena Leikjavísir Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira