Lífið

Cher setur höllina á sölu

Söngkonan Cher hefur sett 14 þúsund fermetra heimili sitt á Malibu á sölu. Í húsinu eru sex herbergi, sjö baðherbergi, enn fleiri stofur, þó nokkrar svalir, líkamsræktarsalur, leikhússalur, tennisvöllur og sundlaug.

Cher vill fá 45 milljónir dollara eða 3.591.900.000,00 íslenskar krónur fyrir herlegheitin.

Burtséð frá fasteignabraski er Cher öll að koma til eftir erfið veikindi sem hrjáðu hana í byrjun árs. Hún þurfti að aflýsa fjölda tónleika en er nú öll að braggast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.