Lífið

Boðar breytingar á Morgunblaðinu

"Ég þurfti að hugsa mig aðeins um áður en ég þáði starfið enda búið að vera afskaplega gaman hjá mér í vinnunni síðasta eina og hálfa árið," segir Ólafur Stephensen. Í dag var tilkynnt að hann muni taka við ritstjórn Morgunblaðsins þegar Styrmir Gunnarsson, sem þar hefur ráðið ríkjum síðan 1972, lætur af störfum í júní.

Ólafur Stephensen hefur undanfarin misseri verið ritstjóri 24 stunda sem er í eigu sama útgáfufélags og gefur út Morgunblaðið. Ólafur segist hlakka til nýju vinnunnar enda hafi hann lengi verið innanbúðar á Morgunblaðinu.

Hann segist ætla að efla samstarf þeirra miðla sem Árvakur á og rekur og auka útbreiðslu þeirra og lestur.

Aðspurður hvort breytinga sé að vænta á Morgunblaðinu svaraði Ólafur: "Það verða örugglega gerðar talverðar breytingar en ég ætla að nota tímann vel næstu vikurnar til þess að undirbúa þær."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.