Óveðrið hefur enn ekki náð hámarki 8. febrúar 2008 20:26
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill árétta það að óveðrið hefur enn ekki náð hámarki á Suðvesturlandi. Einnig á veður enn eftir að versna annars staðar á landinu. Í tilkynningu frá deildinni er hnykkt á því að víða um land er ekkert ferðaveður og fólk ætti alls ekki að vera á ferðinni að nauðsynjalausu. „Það á jafnt við ferðir innan höfuðborgarsvæðisins eins og ferðalög milli staða." Fólki er bent á að draga fyrir glugga áveðurs í húsum og forðast að dvelja í herbergjum sem eru áveðurs. Á Keflavíkurflugvelli bíða um 500 farþegar í fjórum flugvélum eftir því að komast frá borði. Sökum veðurofsans er hvorki hægt að koma vélunum upp að flugstöðvarbyggingunni né koma fólkinu frá borði á annan hátt. Almannavarnir á Suðurnesjum eru í viðbragððstöðu vegna þessa. „Þá vill almannavarnadeildin minna á að í dag hefur verið lýst yfir viðbúnaðarstigi vegna snjóflóðahættu bæði á sunnanverðum og norðanverðum Vestfjörðum. Af þeim sökum er almannavarnakerfið á Vestfjörðum í viðbragðsstöðu," segir einnig í tilkynningu almannavarnadeildar. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að um 180 sjálfboðaliðar björgunarsveita, ásamt slökkviliði og lögreglu, hafi nú sinnt um 150 útköllum vegna óveðurs sem gengur yfir landið. „Flest hafa útköllin verið á höfuðborgarsvæðinu, eða tæplega 100 talsins, á Suðurnesjum þar sem hátt á þriðja tug aðstoðarbeiðna hafa borist og á Akranesi þar sem 10 útköll hafa verið vegna veðurs. Einnig hafa björgunarsveitir verið að störfum í Vestmannaeyju, Hnífsdal, Hellu og Snæfellsbæ." Búist er við að veðrið nái hámarki á milli klukkan 9 og 12 í kvöld á höfuðborgarsvæðinu, skilin ganga svo tiltölulega hratt yfir landið.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara algjörlega galið“ Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um varðandi samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Sjá meira