Hafði engan tíma til að forða sér 8. febrúar 2008 18:52
Bílstjóri á olíuflutningabíl hafði engan tíma til að forða sér þegar snjóflóð féll á bíl hans í Óshlíðinni á Vestfjörðum í dag. Hann slapp ómeiddur en segir það hafa verið nokkuð skuggalegt að sjá flóðið koma niður. Varað er við snjóflóðahættu bæði á norðanverðum og sunnanverðum Vestfjörðum. Fyrstu snjóflóðin féllu á veginn um Óshlíð um hádegisbil en á sama tíma var Ari Jóhannsson olíuflutningabílstjóri að aka um hlíðina. Tvö snjóflóð féllu á bíl hans en eftir að fyrra flóðið féll reyndi hann að bakka en um leið féll annað flóð á bílinn. Ari slapp ómeiddur og bíllinn er lítið skemmdur. Um eitt leytið hélt línuveiðibáturinn Sædís frá Bolungarvík til Ísafjarðar til að sækja þar þrjátíu og fjóra íbúa Bolungarvíkur sem komust ekki til síns heima vegna snjóflóðahættu í Óshlíðinni. Eftir að hafa ferjað íbúana til Bolungarvíkur sigldi Sædís með björgunarbátnum Gísla Hjalta að Óshlíðinni til að sækja þrjá menn sem þar höfðu orðið innlyksa milli tveggja snjóflóða í Óshlíðinni. Þá var vegunum um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals einnig lokað í dag vegna snjóflóða. Enginn var á ferðinni þegar flóðin féllu þar. Vegurinn um Óshlíð verður ekki opnaður aftur í kvöld en varað er við snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum í kvöld og eru lögregla og björgunarsveitarmenn í viðbragðsstöðu vegna þessa.
Mest lesið Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Takmarka fjölda nemenda utan EES Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Erlent Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Mikill meirihluti ánægður með að Ísland taki ekki þátt Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Fleiri fréttir Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Takmarka fjölda nemenda utan EES Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Mikill meirihluti ánægður með að Ísland taki ekki þátt Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Pollróleg þó starfsáætlun þingsins hafi verið felld úr gildi Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Ragnhildur nýr framkvæmdastjóri Píeta samtakanna Norðurþing og Heidelberg undirrita viljayfirlýsingu vegna uppbyggingar á Bakka Skoða málsókn vegna látinna sona og hagstæðustu jólainnkaupin Vestmannaeyjastrengir 4 og 5 teknir í rekstur Grunaður um manndráp á Kársnesi Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Stofnunum fækkar um tuttugu Ísland tekur höndum saman með Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjum Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Skilaboð Vestfirðings til stjórnvalda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Óska eftir myndefni frá Kársnesi vegna mannslátsins „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni „Grafalvarlegt“ að Ísland fari gegn vísindalegri ráðgjöf Laxar struku úr landeldi í Eyjum Starfsáætlun þingsins kippt úr sambandi Faldi töflurnar í nammipoka Ekið á gangandi vegfaranda á Sæbraut Makríllinn enn hitamál og áfall í fiskeldi í Tálknafirði Hjálmar gefur ekki kost á sér Eyjamenn ósáttir við nýbirta samgönguáætlun Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Sjá meira