Vegir til Suðureyrar og Ísafjarðar opnaðir tímabundið 8. febrúar 2008 17:10
Umferð verður hleypt á veginn til Suðureyrar milli klukkan hálf-sex og sex en síðan verður vegurinn hafður lokaður áfram vegna snjóflóðahættu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þá stendur til að hleypa umferð frá Súðavík til Ísafjarðar um hálf sex leytið en síðan verður vegurinn hafður lokaður áfram vegna snjóflóðahættu.Veður fer nú versnandi víða um land og auk þess eru vegir sumstaðar ófærir m.a. vegna snjóflóða. Fólk er eindregið beðið að leggja ekki í ferðalög án þess að kynna sér færð og veður. Búið er að opna Hellisheiði. Sandstormur er á Eyrarbakkavegi en flughálka er á kafla undir Eyjafjöllum og einnig í Þykkvabæ. Hálka og hálkublettir eru annars víða á Suðurlandi en sumstaðar þæfingsfærð á sveitavegum. Óveður er við Hafnarfjall og alls ekki ferðaveður. Eins er óveður á Fróðárheiði og norðanverðu Snæfellsnesi. Raunar er orðið mjög hvasst víðar við Faxaflóa svo sem á Reykjanesbraut, Kjalarnesi og Sandskeiði.Á Vestfjörðum er óveður á Gemlufallsheiði en vegna snjóflóða og snjóflóðahættu er vegur lokaður í Súgandafirði, á Eyrarhlíð, Óshlíð og Súðavíkurhlíð. Snjóþekja og skafrenningur er á Kleifaheiði og á Hálfdán og eins á Steingrímsfjarðarheiði en óveður á Ennishálsi á Ströndum. Á Norðurlandi er hálka eða snjóþekja á öllum leiðum ásamt skafrenning á stöku stað. Óveður og hálka er á Öxnadalsheiði. Vegurinn um Þverárfjall er nú orðinn opinn öllum bílum en þar er hálka. Það er óveður á Mývatnsöræfum og á Hólasandi en annars er víðast hvar hálka eða hálkublettir á Norðaustur- og Austurlandi. Öxi er ófær.Á Suðausturlandi er hálka. Við minnum vegfarendur á að vegna framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar er nauðsynlegt að sýna þar aðgát. Sérstaklega biðjum við fólk að fara varlega við framhjáhlaup við Voga, Grindavíkurveg og Njarðvík. Vegfarendur eru beðnir að virða hraðatakmarkanir.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira