Telur olíudóm fordæmisgefandi fyrir önnur skaðabótamál 8. febrúar 2008 12:13
Dómur Hæstaréttar í máli Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum er fordæmisgefandi varðandi önnur skaðabótamál gegn félögunum. Þetta er mat lögmanns Reykjavíkurborgar. Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Reykavíkur í skaðabótamáli Reykjavíkurborgar gegn olíufélögunum þremur, Skeljungi, Ker og Olís. Ber olíufélögunum að greiða borginni tæpar 73 milljónir í skaðabætur og Strætó bs. tæpar 6 milljónir auk vaxta vegna ólöglegs samráðs. Félögin höfðu með sér ólöglegt samráð í útboði Reykjavíkurborgar vegna kaupa á olíuvörum fyrir Strætó og Vélamiðstöð Reykjavíkur árið 1996. Félögin viðurkenndu að hafa haft með sér samráð en töldu ekki sýnt að borgin hafi orðið fyrir tjóni vegna þessa. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Reykjavíkurborgar, sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 í morgun að um tímamótadóm væri að ræða. Bendir hann á að í dómi Hæstaréttar er staðfest að samráð félaganna hafi haft í för með sér tjón. Að mati Vilhjálms getur dómurinn því verið fordæmisgefandi í öðrum svipuðum skaðabótamálum en hingað til hafa olíufélögin alltaf neitað að samráðið eitt og sér hafi valdið viðskiptavinum tjóni. Vestmannaeyjabær hefur einnig höfðað mál á hendur olíufélögunum en krafa bæjarins nemur tæplega 29 milljónum króna. Ekki er ólíklegt, að sögn Vilhjálms, að dómur Hæstaréttar í gær geti haft áhrif á niðurstöður í því máli.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Erlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Sjá meira