Aðstoðarlandlæknir segir meþadon einungis notað við fráhvörfum 8. febrúar 2008 11:53
Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir segir að meþadon sé ekki notað sem verkjalyf í fangelsum hér á landi. Það sé hins vegar mikið notað í flestum fangelsum til að fást við fráhvörfseinkenni ef sjúklingur hefur verið í fíkniefnaneyslu. Í fréttum Stöðvar 2 í gær var greint frá því að fangi sem lést í klefa sínum á Litla-Hrauni laugardaginn 22. september hafi dáið úr meþadoneitrun. Í fyrstu var talið að hann hefði dáið eðlilegum dauðdaga en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi leiddi krufning annað í ljós. Stöð 2 hefur eftir ættingjum mannsins að þeir skilji ekki hvers vegna manninum hafi verið gefið meþadon og segja að hann hafi í mesta lagi átt við áfengisvandamál að stríða. Matthías segir að Landlæknisembættinu hafi ekki borist sérstök beiðni um að mál fangans verði rannsakað. Hann segir þó líklegt að sú beiðni muni berast og vill því ekki ræða málið efnislega. „Almennt get ég þó sagt að í fangelsinu eru mjög sterkar verklagsreglur varðandi verkjalyf og önnur sterk lyf. Sterk lyf eru þó að sjálfsögðu notuð í undantekningatilfellum, til dæmis ef fangi er mað krabbamein," segir Matthías. Matthías segir að heilbrigðisþjónusta við fanga á Íslandi hafi skánað mjög mikið að undanförnu en það vanti afeitrunardeild við fangelsið á Litla-Hrauni. Fangar þar séu mjög oft í neyslu.
Mest lesið Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Erlent Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Erlent Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Innlent Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Innlent Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Erlent Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Innlent Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Innlent Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Erlent Tólf látnir í hryðjuverkaárásinni í Ástralíu Erlent „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Innlent Fleiri fréttir Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Óttast að fólk sleppi að kaupa lyf vegna minni greiðsluþátttöku Munu reyna að fá nýju virkjunarleyfi hnekkt Vara fólk við póstum og skilaboðum frá Grundarheimilunum Vara við póstum frá Grund og „jafnréttisþreyta“ Stuðningsyfirlýsing Össurar eins og koss dauðans Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þau fái heiðurslaun listamanna Flúði lögregluna en reyndist allsgáð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Beitir sér ekki fyrir sveigjanlegri tilhögun fæðingarorlofs Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Kallar eftir samtali: Ekki spurning hvort heldur hvenær næsta slys verður Vill að allt verði gert til að ná bróður hans úr sprungunni Einn fluttur á slysadeild vegna brunans Sjá meira