Brimborg fær ekki að skila 113 milljóna lóð 22. desember 2008 06:00 Lögmaður Brimborgar segir fyrirtækið berjast við að halda starfsólkinu og vilja fá gatnagerðargjöld á Esjumelum endurgreidd til að nota í varnarbaráttu sem fram undan sé. Fréttablaðið/GVA
Borgarráð hefur synjað Brimborg ehf. um að fá að skila 24 þúsund fermetra atvinnulóð á Esjumelum og fá 113 milljóna króna gatnagerðargjöld endurgreidd. Lögmaður Brimborgar, Tómas Jónsson, telur fyrirtækið eiga skýlausan rétt á að skila lóðinni en Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri hjá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar, telur borginni ekki skylt að leysa lóðina til sín. Í bréfi til borgaryfirvalda rekur Tómas Jónsson þær áætlanir sem Brimborg hafði með lóðina sem fyrirtækið fékk úthlutað á Esjumelum í febrúar árið 2006. Þar hafi átt að vera framtíðaraðstaða sölu og þjónustu fyrir vörubíla, vinnuvélar og bátavélar auk sölu notaðra bíla og þjónustu við fólksbíla. Þrátt fyrir mikinn samdrátt sem byrjað hafi í mars á þessu ári hafi Brimborg talið mögulegt að ljúka verkefninu. Forsendurnar hafi hins vegar brostið þegar bíla- og atvinnutækjamarkaðurinn féll eftir hrun bankakerfisins í byrjun október. „Telur umbjóðandi minn að það muni taka ár og jafnvel áratugi fyrir þann markað að ná aftur fyrri styrk. Þeir fjármunir sem fást við endurgreiðslu gatnagerðargjalda verða að sjálfsögðu notaðir í þeim tilgangi að styrkja fyrirtækið í þeirri varnarbaráttu sem fram undan er,“ segir lögmaður Brimborgar í bréfi sínu. Tómas bendir á að starfsmenn fyrirtækisins séu um 200 talsins og segir mikla áherslu hafa verið lagða á að vernda störf þeirra. Að sögn Tómasar telur Brimborg sig hafa skilað inn umræddri lóð 9. október. Það hafi verið 41 degi áður en borgarráð ákvað, 20. nóvember, að breyta verklagi við skil á lóðum. Ágúst Jónsson hjá framkvæmdasviði borgarinnar segir hins vegar að í lóðaskilmálunum hafi hvergi verið gert ráð fyrir að lóðarhafinn gæti einhliða skilað lóðinni til baka. Samþykkt borgarráðs frá 20. nóvember hafi hins vegar aðeins verið árétting á fyrri skilmálum. Ástand efnahagslífsins snerti alla og Reykjavíkurborg verði að gæta sinna hagsmuna. Aðstæður Brimborgar séu ekki svo sérstakar umfram aðra lóðarhafa að víkja beri frá almennum reglum vegna fyrirtækisins. Að tillögu skrifstofustjórans samþykkti borgarráð að synja Brimborg um skil á lóðinni.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira