Yaris hefur hækkað um 30% á innan við mánuði 3. desember 2008 16:41 Ástæða hækkana má rekja til þess hve tollagengið er hátt.
Framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins segist ekki vita hvort bifreiðaumboðin í landinu muni standa af sér það efnahagsfárviðri sem nú skellur á þjóðinni. Hann segir að bílar hafi hækkað all verulega í verði að undanförnu. Reksturinn sé mjög erfiður enda séu sum umboðin með tugi ef ekki hundruð starfsmanna í vinnu. Umboðin þurfi að standa undir launakostnaði og öðrum kostnaði, eins og önnur fyrirtæki. Verð á bifreiðum hefur hækkað um tugi prósenta að undanförnu. Sem dæmi má nefna að verð á ódýrustu gerð af Toyota Yaris hefur hækkað úr 1790 þúsund krónum í tæpar 2,6 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda. Þetta þýðir hækkun um 30% frá því í nóvember. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir að ástæðuna fyrir bílverðshækkunum megi rekja til hás tollagengis. „Málið er að þessir bílar sem koma hingað til lands og eru hérna við hafnarbakkann eru flestir löngu komnir hingað til lands," segir Özur. Hann bendir á að þeir hafi komið í sumar, þegar staðan á krónunni hafi verið allt önnur. Bílarnir hafi verið greiddir til framleiðanda þá, í sumum tilfellum með lánum. „En þegar þessir bílar eru seldir í dag eru þeir sóttir niður á höfn og þá miðast tollgengið við gengið í dag," segir Özur. Özur segir að töluverður fjöldi ótollafgreiddra bifreiða liggi niðri við höfn, líklegast á bilinu 4-5 þúsund bílar. Hann segir að þetta geri rekstur bílaumboðanna þungan. „Þetta er bara ósköp einfalt dæmi. Ef þú ert að reka sjoppu og það kemur enginn í sjoppuna að þá gengur dæmið ekki upp," segir Özur. Hann vill að tollagengið verði fest á einhverjum ákveðnum stað, til dæmis í líkingu við það sem það var í sumar.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Sjá meira