Sumargleðin endurvakin Steinþór Helgi Arnsteinsson skrifar 20. júní 2008 17:26 Sumargleðin árið 1982. „
Mér finnst þetta stórskemmtilegt, því eins og í tónlist þá gengur skemmtanaiðnaðurinn líka í hringi. Þegar ungir menn ætla að hasla sér völl í þessum bransa þá er ágætt að fara í smiðju gömlu mannanna sem voru með sólskinsbros á vörum, hringinn í kringum landið í sextán ár," segir ofurskemmtarinn Hemmi Gunn um þá áætlun hljómsveita Kimi Records að ferðast í kringum landið og spila fyrir landsmenn undir yfirskriftinni Sumargleði Kimi Records. Sumargleðin var upp á sitt besta á áttunda og sjöunda áratug síðustu aldar og innihélt stórstjörnur á borð við Ragga Bjarna, Ómar Ragnarsson, Þorgeir Ástvalds auk Hemma að sjálfsögðu. Sumargleðin snýst um að skemmta fólkinu Á blaðamannafundi í gær kom fram að þegar verið var að undirbúa ferð sveitanna í sumar kom ekkert annað í mál en að nefna sig eftir Sumargleðinni sálugu. Hin nýja Sumargleði ætlar meira að segja að ganga svo langt að klæðast Henson-göllum sem voru á sínum tíma eitt af vörumerkjum eldri Sumargleðinnar. „Við lögðum alltaf ofuráherslu á að þetta væri íslensk skemmtun og þess vegna vildum við líka styðja allt sem var íslenskt," útskýrir Hemmi. Hemmi óttast ekki að uppátæki Kimi Records manna muni skaða ímynd Sumargleðinnar enda sé það fyrir löngu orðið að klassísku vörumerki. „Sumargleðin snérist alltaf um að skemmta fólkinu en ekki okkur sjálfum og þannig varð hún aldrei sjálfshátíð heldur þjóðhátíð sem gekk allar vikur sumarsins," segir Hemmi að lokum og ættu þessi orð að vera nýju Sumargleðinni gott veganesti út í sumarið. Skemmtileg skírskotun í íslenska dægurmenningu Hljómsveitirnar sem standa að Sumargleði Kimi Records eru Morðingjarnir, Reykjavík!, Borko og Benni Hemm Hemm. „Við erum kannski ekki með Bjössa Bollu og allar þessar kempur en það er gaman að nota nafn sem hefur skemmtilega skírskotun í íslenska dægurmenningu. Það voru margir snillingar í gömlu Sumargleðinni og við erum á einhvern hátt að heiðra þá með því að nota nafnið," segir Björn Kristjánsson, oft þekktur undir nafnið Borko. Sumargleðin í ár lítur svona út:14. júlí - Stokkseyri, Draugasetrið 15. júlí - Ísafjörður, Edinborg 16. júlí - Akureyri, Græni Hatturinn 17. júlí - Húsavík, Gamli Baukur 18. júlí - Seyðisfjörður, Leikhúsið 19. júlí - Höfn í Hornafirði, Pakkhúsið 23. júlí - Reykjavík, Nasa Tónleikarnir eru sérstaklega styrktir af Innrásar-verkefni Kraums.
Mest lesið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Fleiri fréttir Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Sjá meira