2,5 milljónir sáu Náttúrutónleikana á vef National Geographic 30. júní 2008 10:23 Margrét Vilhjálmsdóttir. „
Við erum rosalega ánægð. Þetta gekk svakalega vel," segir Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona aðspurð um Náttúrutónleikana með Björk og SigurRós sem voru haldnir í Laugardalnum síðasta laugardag en talið er að um 30 þúsund manns hafi mætt. "Við fengum mikila athygli og erum glöð að umræðan er komin af stað. Þetta málefni brennur á öllum og markmið tónleikanna voru mjög skýr. Þetta voru ekki bara tónleikar, heldur skýr skilaboð og umræðan heldur áfram, henni er ekki lokið." "Það ríkir mikil ánægja hjá tónleikahöldurum því allt fór svo vel fram. Samstarfið við Reykjavíkurborg var stórkostlegt og við alla aðila sem komu að þessu." „Við þökkum öllum Íslendingum fyrir að mæta. Það mætti ótrúlegur fjöldi, mestur fjöldi sem hefur komið á útitónleika. National Geographic, sem sýndi tónleikana í beinni útsendingu á vefnum, sendi okkur upplýsingar um að 2,5 milljónir manna hafi horft á tónleikana." Nú sést þú í hlutverki nunnu í sjónvarpsauglýsingu? „Já en ég geri þetta sjaldan. Ég laumaðist að vera með í auglýsingu fyrir Símann. Það getur verið dálítið erfitt fyrir leikara þegar kemur að því að leika í auglýsingum því þeir vilja láta taka sig alvarlega. Það fer ekki alltaf saman með listinni." „Ég vil bara hvetja fólk til að fara á heimasíðuna nattura.info og sækja hringitóna og styðja gott málefni."
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið Auður segir skilið við Gímaldið Menning Fleiri fréttir Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Sjá meira