Árni Johnsen - fær sér tvær pulsur í einu brauði SB skrifar 30. júní 2008 10:48 Árni segist finna fyrir eftirspurn fyrir sínum kröftum á þingi. Vísir/GVA
Þingmaðurinn Árni Johnsen fær sér alltaf tvær pulsur í sama brauðið þegar hann snæðir á Bæjarins besta í hádeginu. Hann segist þó ætla að láta pulsurnar vera þegar hann fagnar útboði á Suðurstrandavegi í dag - enda bjóða Sjálfstæðismenn upp á þriggja rétta veislu í tilefni dagsins. „Jú, það er rétt. Ég fæ mér oft tvær pulsur í sama brauðið,“ segir Árni Johnsen sem er vanur því að fara sínar eigin leiðir. „Þetta er bara í réttu hlutfalli við brauðið. Og svo fæ ég mér bara tómat og sinnep. Mikið sinnep - svona eins og Clinton.“ Árni segir pulsurnar á Bæjarins bestu mjög góðar. „Þær eru alveg spes. Svo er pulsuvagninn á Selfossi mjög góður. Þar fær maður besta sinnep á landinu og allskyns fína rétti - hamborgara og laukhringi.“ Dagurinn í dag er merkisdagur fyrir Árna. Í tilefni af útboði á Suðurstrandavegi sem mun tengja hringveginn milli Grindavíkur og Þorlákshafnar slá Sjálfstæðismenn upp veislu. „Sjálfstæðismenn í Reykjavík bjóða upp á humarsúpu í ráðhúsinu klukkan eitt, svo býður bæjarstjórn Hafnarfjarðar upp á tertu klukkan hálf þrjú, og Sjálfstæðismenn í Grindavík klára daginn með sjávarréttarsúpu. Þannig að það er þriggja rétta veisla í þremur bæjarfélögum.“ Árni fær sér því trúlega ekki pulsu í dag - eða pulsutvennu eins og Árna Johnsen pulsan verður trúlega kölluð í framtíðinni. Og fer þá á stall með hinni frægu Clinton pulsu sem komst í heimsfréttirnar.
Mest lesið Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Lífið Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Lífið Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Lífið Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Lífið Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Lífið Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Lífið Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Lífið Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Lífið Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Lífið Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Lífið samstarf Fleiri fréttir Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Fagnaði afmælinu með sínum kærustu vinkonum Rúv býður upp á hollenskt fréttastef Gummi Ben mætti með Michelin-kokk Glænýr bóksölulisti: Skólastjóri Ævars Þórs skýtur kónginum ref fyrir rass Áfall að dóttirin ætti 44 árum eldri kærasta Ómar Úlfur nýr dagskrárstjóri Bylgjunnar Sveppi gerði fyrsta ógeðsdrykkinn í tuttugu ár fyrir Bjarna Ben Sjá meira