Jörðin fór að titra þegar talið barst að Loka Laufeyjarsyni Breki Logason skrifar 30. maí 2008 15:03 Birna Þórðardóttir stendur fyrir gönguferðum um miðbæinn sem bera heitið, Í fótspor kattarins.
Birna Þórðardóttir stendur fyrir gönguferðum um miðbæinn sem bera heitið, Í fótspor kattarins. Í gær var hún með hóp og var að ræða um heitin á götunum í þingholtunum. Þegar talið barst að Lokastíg og sögunni af Loka Laufeyjarsyni gerðist atvik sem óhætt er að segja að hafi fengið hópinn til þess að standa á öndinni. „Þegar við komum að Lokastíg fer ég að útskýra hvernig er nú komið fyrir honum Loka þar sem hann liggur bundinn í hellinum. Sigyn kona hans heldur skál yfir honum og passar að eitrið fari ekki í andlit Loka. Síðan þegar skálin er orðin full þarf hún að fara út fyrir hellinn og tæma hana," segir Birna þegar hún rifjar upp atburði gærdagsins. „Hún gerir sér það að leik að vera svolítið lengi og á meðan drýpur eitrið í andlit Loka og við það verður jarðskjálfti," segir Birna sem vitnaði síðan í samtal sitt við Ragnar Stefánsson, gjarnan kenndan við Skjálfta. „Ég spurði hann eitt sinn að því hvort þetta stæðist ekki jarðfræðilega og hann svarði því ekki með nei-i og því tek ég því sem já-i. Þegar ég er búin að sleppa orðinu fer allt að titra og skjálfa," segir Birna en þetta var fimmtán mínútum fyrir fjögur í gær þegar stóri skjálftinn dundi yfir landið. „Þá sagði fólk að þetta væri líklega satt hjá mér, enda er allt illt honum Loka að kenna." Birna segist hafa séð á augnaráði fólks að hún þyrfti kannski að gæta orða sinna betur næst. „Ég er einmitt að fara í aðra gönguferð núna á þessar sömu slóðir, ætli það sé ekki best að ég finni mér annað orðalag."
Mest lesið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Lífið Fleiri fréttir Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Sjá meira