Fer í kringum landið á 80 höggum 2. júlí 2008 16:17 „
Ég held við þurfum nú að vera frekar heppin ef þetta á að nást," segir sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson. Hann leggur um kvöldmatarleitið ásamt fríðu föruneyti af stað í ferð þar sem ætlunin er að spila eina holu á 18 golfvöllum umhverfis landið á sólarhring, til styrktar MND-félaginu. Logi býst við að þurfa að innbyrða töluvert af koffíni til að halda sér vakandi í ferðinni. „Ég er með kassa af Cult, vona að það dugi eitthvað. Ætli maður reyni ekki líka að ná dúrum í vélinni á leiðinni," segir Logi, en Þorvaldur Lúðvík, forstjóri Saga Capital mun sjá um að ferja hópinn á milli golfvalla á flugvél sinni. Aðspurður hvort hann hafi engar áhyggjur af því að stíga upp í vél með manni sem hefur ekki sofið í sólarhring þvertekur Logi fyrir það. „Nei nei, ég held það sé annar flugmaður líka. Ég hef engar áhyggjur." Þau Ragnhildur Sigurðardóttir margfaldur Íslandsmeistari í golfi, Þorsteinn Hallgrímsson fyrrverandi Íslandsmeistari og popparinn Eyjólfur Kristjánsson slást í för með Loga, en hann segir þau öll þekkja einstaklinga sem þjást af MND. MND er banvænn sjúkdómur sem herjar á hreyfitaugar líkamans. Af honum leiðir máttleysi og lömun í handleggjum, fótleggjum, munni, hálsi o.s.fv. sem eykst hratt og endar í algerri lömun. Vitsmunalegur styrkur helst þó óskaddaður. Líftími sjúklinga eftir að þeir fá sjúkdóminn er frá 1 -6 ár en sumir lifa lengur, allt upp undir 10 ár. Á hverju ári greinast um fimm manns Íslandi með MND, og sjúklingar á hverjum tíma eru á bilinu fimmtán til tuttugu. Þeir sem vilja styrkja félagið geta hringt í síma 908 1001, til að gefa þúsund krónur, 908 1003 til að gefa þrjú þúsund, og 908 1005 fyrir fimmþúsund krónur. Hægt er að hafa samband við þjónustuver Vodafone í síma 1414 fyrir önnur framlög eða nánari upplýsingar um söfnunina.
Mest lesið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið „Ég er skíthræddur“ Tónlist Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Fleiri fréttir Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Sjá meira