Persóna Megasar ekki föl 19. júní 2008 06:00 Þeir Rúnar og Megas nutu veðurblíðunnar í vesturbænum í gær og skelltu sér í róló. Fréttablaðið/daníel „
Nei, ég get staðfest það. Þetta er í fyrsta sinn sem Megas selur lag í auglýsingu,“ segir Rúnar Birgisson, umboðsmaður Megasar. Megas hefur nú selt lagið Ef þú smælar framan í heiminn til Toyota til afnota í nýrri auglýsingu sem birtist fyrst á 17. júní. Um er að ræða útgáfu af laginu sem var sérstaklega tekin upp fyrir auglýsinguna. Rúnar hafði þvertekið fyrir að þetta samstarf væri á prjónunum og velta menn því fyrir sér hvort umboðsmaðurinn hafi hreinlega ekki verið með í ráðum. „Jú, að sjálfsögðu var ég það. Mér datt bara ekki í hug að leka þessu í fjölmiðla og eiga á hættu að eyðileggja verkefnið.“ Rúnar segir þær tölur sem nefndar hafa verið í sambandi við greiðslur Toyota til Megasar vera fjarri lagi, en leiddar hafa verið að því líkur að upphæðin sé um 1,3 milljónir. Hvort upphæðin væri hærri en svo vildi Rúnar ekkert tjá sig um, ekki frekar en að hún væri lægri. Rúnar segir Megas oft hafa fengið boð um að að selja lög sín í auglýsingar en ávallt neitað þar til núna. „Hvað hefur breyst? „Það hefur í raun ekkert breyst. Þetta var bara tilfallandi og hentaði vel á þessum tímapunkti. Úr varð þessi nýja útgáfa af laginu sem er jafnframt besta útgáfan. Auk þess var þetta samstarf, við Toyota og Íslensku auglýsingastofuna til fyrirmyndar,“ segir Rúnar. Rúnar efar að Íslendingar geti átt von á Megasi í sjónvarpsauglýsingu, akandi um á Land Cruiser að dásama hve gaman er að keyra í súld og norðaustan roki. „Ég held nú að menn ættu að varast allan samanburð við Bubba Morthens. Enda var ekki persónan Megas í auglýsingunni, heldur bara lagið og frasinn,“ segir Rúnar. Þótt samstarf Toyota og Megasar hafi gengið vel eru ekki allir á eitt sáttir við sölu Megasar á laginu. „Þetta finnst mér mjög leitt að heyra,“ segir Valur Gunnarsson rithöfundur en hann gróf allar Bubbaplöturnar sínar á sínum tíma þegar hann taldi Bubba hafa náð botninum í sölu á sjálfum sér. „Þetta er leiðinlegt fyrir sögu Megasar. Honum var boðið að selja lagið Reykjavíkurnætur í auglýsingu hjá flugfélagi fyrir einhverjum árum síðan og tók það ekki í mál þrátt fyrir að hafa ekki mikið fé milli handanna. Ég virti hann fyrir það en nú hefur annað komið á daginn,“ segir Valur. Hvað varðar þá staðreynd að lagið hafi einungis verið selt en ekki persónan segir Valur: „Fyrir mér eru lögin heilagri en persónan. Nú get ég ekki heyrt þetta lag án þess að hugsa um Toyota,“ segir Valur, sem ætlar þó ekki að grafa plötur Megasar. „Hjá Bubba var þetta endapunkturinn á tíu ára prósess. Megas sleppur með áminningu að þessu sinni enda gert margt gott og á gott skilið."
Mest lesið Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Big Pussy er látinn Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira