Móður ungs fíkils ekki sagt frá unglingadeild SÁÁ Alda Áskelsdóttir skrifar 7. febrúar 2008 16:27 Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi.
Unglingur sem vill fara í meðferð á unglingadeild SÁÁ getur fengið pláss þar nær samdægurs. Móðir drengsins sem rændi útibú Glitnis í Lækjargötu á mánudag var ekki bent á þann möguleika á sínum tíma. Hún sagði í 24 stundum í dag að "kerfið" hefði brugðist syni sínum. ,,Ég vildi fá hjálp vegna vímuefnaneyslu Ásgeirs Hrafns og leitaði til Barnaverndar Reykjavíkur. Svörin voru að hann yrði að bíða í allt að þrjá mánuði áður en hægt væri að sækja um meðferðarpláss fyrir hann. Meta þyrfti aðstæður hans. Ásgeir var tilbúinn að leita sér hjálpar á þessum tíma en ekki eftir þrjá mánuði. Honum var ekki boðið upp á hjálp meðan að matið átti að fara fram né bent á önnur úrræði. Ég hafði ekki hugmynd um á þessum tíma að SÁÁ ræki deild fyrir unga fíkniefnaneytendur. Það var ekki fyrr en ári síðar og sonur minn enn lengra leiddur að hann fór í meðferð hjá SÁÁ." Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segist ekki ætla að draga orð móðurinnar í efa. ,,Ef til vill var þekking starfsmannsins sem tók á móti henni ekki nægilega yfirgripsmikil. Á þessum tíma var Barnavernd Reykjavíkur nýtekin til starfa. Við reynum að veita upplýsingar um meðferðarúrræði sem eru í boði og benda fólk hvert það geti leitað. Verklag og verklagsreglur hafa verið reglulega í endurskoðun síðan þetta var og þá sérstaklega hvað varaðr uppklýsingagjöf." Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi kannst vel við þetta vandamál. ,,Við, starfsfólk SÁÁ, höfum vitað lengi að kerfið upplýsir fólk ekki nægilega vel um þau úrræði sem eru í boði. Við höfum oft orðið vör við að ekki er minnst á unglingadeild SÁÁ við foreldra. Nýverið var skrifað undir samstarfssamning á milli Reykjavíkurborgar og SÁÁ þar sem eitt af markmiðunum er að bæta upplýsingaflæðið."
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Sjá meira