Innlent

Kílóverð á dilkakjöti hækki um nærri 100 krónur

MYND/GVA

Verð á dilkakjöti til bænda mun hækka að lágmarki um 98 krónur fyrir kíló í ár samkvæmt samþykkt sem stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda hefur gert.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að aðalfundur samtakanna hafi falið stjórninni að gefa sem fyrst út viðmiðunarverð eins og henni er heimilt samkvæmt lögum. Samkvæmt samþykktinni á viðmiðunarverðið að fela í sér að verð á dilkakjöti til sauðfjárbænda hækki að lágmarki um 98 krónur á kíló miðað við vegið meðalverð ársins 2007. Það þýðir að vegið meðalverð á dilkakjöti innanlands þarf að fara upp í 461 krónur á kíló.

Verð fyrir dilkakjöt til útflutnings þarf að sama skapi að fara upp í 335 krónur á kíló. Í tillögunni segir jafnframt að kjöt af fullorðnum gripum þurfi a.m.k. að taka sömu hækkun hlutfallslega.

Rökin fyrir hækkuninni eru fyrst og fremst miklar aðfangahækkanir til bænda á undanförnum vikum og mánuðum. Verðið er ekki bindandi fyrir afurðastöðvar en stjórnin hefur heimild til að gefa það út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×