Segir þjónustutryggingu ýta undir kynbundinn launamun 9. apríl 2008 21:03
Fulltrúi Vinstri - grænna í leikskólaráði gefur lítið fyri hugmyndir meirihlutans um þjónustutryggingu fyrir þá foreldra sem bíða eftir að fá inni á leikskóla fyrir börnin sín. Hún segir ljóst að aðgerðirnar ýti undir kynbundinn launamun og segir ekkert eftirlit verða með hvernig greiðslum frá borginni verði varið. Ólafur F. Magnússon borgarstjóri og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður leikskólaráðs, kynntu í dag aðgerðaráætlun undir yfirskriftinni Borgarbörn. Samkvæmt áætlunninni stendur til á næstu fjórum árum að fjölga leikskólaplássum með því að byggja nýja leikskóla og bæta nýjum deildum við rótgróna leikskóla. Enn fremur á að semja við dagforeldra og koma á fót svokallaðri þjónustutrygggingu. Það er greiðsla sem verður jafnhá þeirri sem Reykjavíkurborg greiðir með barni sem er í vistun hjá dagforeldri. Munu foreldrar sem þiggja þjónustutryggingu en ráðstafa henni ekki til þriðja aðila skipta á milli sín greiðslutímabilinu á sambærilegan hátt og lög um fæðingarorlof gera ráð fyrir. Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri - grænna í leikskólaráði, segir ljóst að ábyrgðin verið meiri hjá konum í þessum efnum þar sem konur hafi almennt lægri laun en karlar. Þettta ýti því undir kynbundinn launamun. „Þetta hvetur heldur ekki láglaunakonur til þess að fara út að vinna því þær fá jafnmikið í atvinnuleysisbætur og þjónustutryggingu samanlagt og þær fengju fyrri lægst launuðu störfin hjá borginni til að mynda. Þetta er því atvinnuletjandi," segir Sóley. „Svo er engin leið að fylgjast með því hvernig foreldrar deila ábyrgðinni, það er ekkert eftirlit með því," segir Sóley enn fremur. Um uppbygginguna á leikskólum á næstu árum segir Sóley að þar gefi meirihlutinn sér of mikið. Borgin hyggist byggja á fimmta hundrað leikskólapláss, eða hundrað meira en mannfjöldaspár gera ráð fyrir. Þá sé gert ráð fyrir að einkaaðilar byggi upp 258 pláss. „Það hefur hins vegar engin stefnumótun farið fram um þá uppbyggingu og ekki búið að semja við neinn um það," segir Sóley. Þá geri meirihlutinn ráð fyrir að fæðingarorlof lengist í eitt ár árið 2010 þannig að börn yngri en 12 mánaða detti út af listum borgarinnar. „Það er lítið sem ekkert sem bendir þess að fæðingarorlofið verði svo langt eftir tvö ár," segir Sóley. Þá gagnrýnir hún hversu lítinn tíma minnihlutinn fékk til að kynna sér málið og hversu stutt var til umfjöllunar í fagráðinu sjálfu í dag. „Við fengum gögn um málið klukkan hálfsex í gær og svo var fundur klukkan hálftvö í dag. Meirihlutinn var ekki tilbúinn að fresta málinu og lítill tími var gefinn til umræðu því fulltrúi meirihlutans þurfi að flýta sér á blaðamannafund að kynna hugmyndirnar," segir Sóley.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Sjá meira