Þungamiðja búsetu borgarinnar færist til um rúma 70 metra 9. apríl 2008 20:15 Á myndinni sést þungamiðja búsetu á höfuðborgarsvæðinu og þróun hennar frá vorinu 2002. MYND/Vefur Reykjavíkurborgar
Þungamiðja búsetu höfuðborgarsvæðisins hefur færst um 71 metra í Fossvogi frá því í fyrra, eða frá Goðalandi 5 til Grundarlands 4. Þá hefur þungamiðja borgarinnar færst frá þakinu á Menntaskólanum við Sund að lóðamörkum skólans við Snekkjuvog. Þetta leiða nýir útreikningar framkvæmda- og eignasviðs borgarinnar í ljós. Fram kemur á vef hennar að þungamiðja hafi frá því mælingar hófust árið 2002 verið í Fossvogshverfi og hingað til verið á siglingu austur eftir hverfinu. Frá því um sama leyti í fyrra hafa orðið þær breytingar að þungamiðjan hefur beygt til suðausturs og færst um 71 metra sem fyrr segir. Er það talsvert meiri hreyfing en árið á undan. Skýringa á þessum miklu breytingum er meðal annars að leita í gríðarlegri uppbyggingu á austursvæðum Reykjavíkur og í Mosfellsbæ, á þéttingarsvæðum í norðanverðri Reykjavík, í Vatnsendalandi, í miðju Garðabæjar og á svæðum syðst í Hafnarfirði. Mikil uppbygging í Vatnsmýri, við Örfirisey og Mýrargötu gæti breytt þessari heildarmynd verulega, segir borgin. Þungamiðja búsetu er reiknuð á grundvelli kortagrunns Landupplýsingakerfis Reykjavíkur og heimilisfangasafns Samsýnar. Framkvæmda- og eignasvið hefur einnig reiknað út þungamiðju búsetu í Reykjavík einni. Hún var var fyrir ári síðan á þaki Menntaskólans við Sund en hefur færst um 60 metra í suður, alveg að lóðamörkunum við Snekkjuvog. Bilið á milli þungamiðju búsetu á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og Reykjavíkur hins vegar hefur minnkað frá síðustu mælingum úr 1560 metrum í 1534 metra.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira