Segjast geta breytt koltvísýringi og vetni í eldsneyti 9. apríl 2008 18:41
Ísland gæti orðið óháð innflutningi á olíu ef áform fyrirtækisins Carbon Recycling International ganga eftir. Í dag sýndu fulltrúar fyrirtækisins hvernig hægt er að umbreyta koltvísýringsútblæstri frá jarðvarmavirkjunum og vetni yfir í fljótandi eldsneyti. Fyrirtækið er í eigu íslenskra og erlendra fjárfesta en það sérhæfir sig í þróun á nýrri tækni sem umbreytir koltvísýringsútblæstri yfir í metanól. Í dag héldu fulltrúar fyrirtækisins kynningarfund í Húsnæði Háskólans í Reykjavík við Höfðabakka en þar hefur einnig verið komið upp sérstökum tilraunabúnaði sem byggir á hinni nýju tækni. Búnaðurinn getur framleitt um 40 lítra af metanóli á dag og var sérstaklega kveikt í vökvanum til að sýna fram á gæði hans. Fyrirtækið hefur hug á að reisa verksmiðju á svæði Hitaveitu Suðurnesja við Svartsengi þar sem útblástur frá jarðvarmavirkjunum verður notaður til að vinna metanólið. Á verksmiðjan að geta framleitt um 4,5 milljón lítra af metanóli á ári. Reiknað er með því að framkvæmdir geti hafist á þessu ári. Skili verksmiðjan áætlaðri arðsemi er ætlunin að reisa enn stærri verksmiðju en fulltrúar Carbon Recycling fullyrða að í framtíðinni geti Ísland með þessari framleiðslu orðið óháð innflutning á olíu. Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, segir verkefnið vera mjög áhugavert.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira