Grunnskólakennarar launalægstir kennarastétta 9. apríl 2008 17:34 MYND/GVA
Grunnskólakennarar eru launalægstir kennarastétta samkvæmt kjarakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Kennarasamband Íslands. Þeir vilja jafnframt að laun þeirra hækki um nærri 50 prósent. Fram kemur í tilkynningu frá Kennarasambandnu að könnun hafi verið unnin samhliða könnunum BHM og BSRB um sama efni. Hún leiðir í ljós að meðalgrunnlaun framhaldsskólakennara í október 2007 voru tæpar 295 þúsund krónur en meðalheildarlaun þeirra tæpar 406 þúsund krónur. Meðalgrunnlaun leikskólakennara reyndust tæplega 262 þúsund krónur en meðalheildarlaun 297 þúsund. Þá reyndist meðaltal grunnlauna tónlistarkennara tæpar 292 þúsund krónur en meðalheildarlaun þeirra rúmar 331 þúsund. Grunnskólakennarar reka svo lestina en grunnlaun þeirra voru rúmar 242 þúsund krónur en heildarlaunin tæpar 286 þúsund krónur. Launamunur kynjanna fimm prósent Þá kemur fram í tilkynningunni að karlmenn séu að jafnaði með 18 prósentum hærri heildarlaun en konur. Þegar búið er að taka út áhrif vinnutíma, menntunar, starfsaldurs og aðra sambærilega þætti er kynbundinn launamunur 5 prósent sem er það lægsta sem fram hefur komið í sambærilegum kjarakönnunum Capacent Gallup. Enn fremur segir kemur í ljóst að framhaldsskólakennarar vinna lengst í hverri viku, eða rúmlega 52 stunda vinnuviku. Þar á eftir koma grunnskólakennarar með rúmlega 46 stundir, tónlistarkennarar vinna rúmar 44 stundir á viku og leikskólakennarar tæpar 32 stundir. Karlmenn vinna að jafnaði um þremur stundum lengur á viku en konur. Þegar spurt var um hversu mikið laun þyrftu að hækka til að teljast sanngjörn töldu grunnskólakennarar að laun þeirra þyrftu að hækka um tæp 46 prósent, leikskólakennarar um tæp 34 prósent, tónlistarkennarar um tæp 30 prósent og framhaldsskólakennarar um tæpan fjórðung. Rúmlega 2.800 manns voru í úrtaki og svarhlutfall tæplega 65 prósent.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira