Höfum innleitt nær alla landbúnaðarstefnu ESB nema styrkjakerfið 9. apríl 2008 14:42 MYND/Pjetur
Íslendingar hafa innleitt nær alla landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins að undanskildu styrkjakerfinu. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í dag. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, vakti athygli á því að Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefði í síðustu viku mælt fyrir frumvarpi sem meðal annars gerir ráð fyrir frjálsum innflutningi á hráu kjöti frá ríkjum ESB. Benti hún á að með þessu hefðu Íslendingar innleitt alla löggjöf ESB í landbúnaðarmálum nema styrkjakerfið. Sagði hún ráðherra hafa flutt látlausa ræðu um málið á þingi og ekki sagt um grundvallarbreytingu að ræða. Hins vegar hefði kveðið við annan tón þegar ráðherra hefði komið í Valhöll á laugardag og talað um það með stjörnum í augum sem grundvallarbreytingu í landbúnaði. Spurði hún Arnbjörgu Sveinsdóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, hvort sjálfstæðismenn væru með frumvarpinu að flytja póst frá Brussel, eins og hún orðaði það, eða hvort verið væri að breyta landbúnaðinum í grundvallaratriðum. Íslendingar á óheftan aðgang með sjávarafurðir í staðinn Arnbjörg benti á að Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra og formaður Framsóknarflokksins, hefði hafið vinnuna að frumvarpinu. Reyndin væri sú að Íslendingar hefðu ekki lengur undanþágu frá því að flytja inn hrátt kjöt. Þetta væri hluti af þeim samningum að Íslendingar hefðu fengið óheftan aðgang inn á Evrópumarkað með sjávarafurðir sínar. Til þess að afurðirnar yrðu ekki meðhöndlaðar eins og þriðja ríkis vara yrðu Íslendingar að taka umrædda löggjöf upp. Hér væri um heilmikla breytingu að ræða og landbúnaðarnefnd færi nú yfir málið. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði flokk sinn ánægðan með hinar nýju áherslur og verið væri að afnema viðskiptahindranir sem bætti stöðu neytenda til lengri tíma. Menn þyrftu hins vegar að ræða það á næstu árum hvernig þeir vildu tolla kjötið. Þá tók hann undir með Valgerði og benti á að á fundi landbúnaðarnefndar í morgun hefðu fulltrúar Landbúnaðarstofnunar bent á að með hinu nýja frumvarpi hefði Ísland innleitt nær alla landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins fyrir utan styrkjakerfið. Valgerður tók aftur til máls og benti á að löggjöfin væri í raun póstur frá Brussel en ekki sú grundvallarbreyting á landbúnaði sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefði látið í veðri vakta.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira