Sakar sjálfstæðismenn um skemmdarverk á Suðurnesjum 9. apríl 2008 14:14 MYND/GVA
Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, gagnrýndi sjálfstæðismenn á þingi harðlega fyrir að vilja skilja í sundur lögreglu, tollgæslu og öryggisgæslu á Suðurnesjum og sakaði þá um skemmdarverk. Það var Grétar Mar Jónsson, flokksbróðir Kristins, sem tók málið upp á Alþingi í dag og sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hafa lítilsvirt Alþingi og gefið Árna Mathiesen fjármálaráðherra fyrirmæli um að breyta tollalögum. Breytingarnar sneru aðallega að lögreglunni á Suðurnesjum þar sem ætlunin væri að skilja að tollgæslu og lögreglu sem sameinuð hefðu verið undir einu embætti fyrir aðeins 16 mánuðum. Sagði hann frjálslynda hafa farið fram á úttekt á lögreglustjóraembættinu á Suðurnesjum og þeir vildu því bíða með allar breytingar þar til sú úttekt lægi fyrir. Spurði hann Arnbjörgu Sveinsdóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, hvort stuðningur væri við málið í ríkisstjórninni. Arnbjörg sagði að verið væri að fjalla um málið hjá flokkunum og ágætis samstarf væri hjá Birni Bjarnasyni og Árna Mathiesen. Hún ætti ekki von á öðru en að það kæmu fram góðar tillögur í málinu og menn fengju lausn í því. Tækifæri til að efla lögregluna Björk Guðjónsdóttir, flokkssystir Arnbjargar og þingmaður Suðurkjördæmis, sagði sveitarstjórnarmenn hafa lýst yfir áhyggjum af málinu en þeim hefði verið kynnt breytingin í fyrra á þann veg að hún myndi styrkja og efla lögregluna á Suðurnesjum. Síðan hefði lögreglumönnum fækkað og sveitarstjórnarmenn hefðu áhyggjur af öryggi íbúa á Suðurnesjum. Sagði hún breytingarnar ekki eiga að veikja stöðu lögreglu, tolls og öryggisgæslu og með nýju fyrirkomulagi ætti að skapast tækifæri til þess að efla lögregluna. Eitt alskrítnasta má sem komið hefur inn á Alþingi Kristinn H. Gunnarsson sagði málið eitt það alskrítnasta sem rekið hefði á fjörur Alþingis. Nýbúið væri að sameina lögreglu á Suðurnesjum og tollgæslu og öryggisgæslu á Keflavíkurflugvelli með því markmið að ná fram hagræðingu. Nú ætti að rífa þetta í sundur með sömu rökum. Spurði hann Björk hvað hún ætti við með nýjum tækifærum, hvort það væri tækifæri til þess að henda út sparnaði og eyðileggja það samstarf sem náðst hefði. Enn fremur spurði hann hvort þetta væri tækiæri til þess að fá annan sýslumann með annað flokksskírteini. Sagðist hann undrandi að heyra þetta frá þingmanni Suðurkjördæmis. Gerði hann orð Lúðvíks Bergvinssonar, þingflokksformanns Samfylkingarinnar, að sínum og spurði: „Hvers vegna að gera við það sem ekki er bilað?" Tóm lögreglustöð í Grindavík Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, tók í svipaðan streng og sagði að stjórnvöld yrðu að skýra betur hvað lægi á bak við ákvarðanirnar. Þá þyrfti að fá upp á borðið ef um persónulegan ágreining væri að ræða. Vakti hann enn fremur athygli á því að hin almenna lögggæsla í landinu væri að drabbast niður. Hann hefði nýverið verið í Grindavík og þar væri megn óánægja með það að þar stæði lögreglustöðin tóm. Þetta væri ástandið sem boðið væri upp á í einum af stóru kaupstöðum landsins. Sagði hann meiri fjármuni vanta í málaflokkinn og að nær væri að setja peninga í löggæslu en varnarmál.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira