Innlent

Vegurinn á Kjalarnesi lokaður við Grundarhverfi

Þjóðvegurinn á Kjalarnesi er lokaður í báðar áttir við Grundarhverfið. Umferðarslys varð þarna fyrr í morgun er rúta skall aftan á vörubíl með tengivagni.

Að sögn lögreglunnar fótbrotnaði bílstjóri rútunnar en ekkert amaði að farþegum hennar fyrir utan skrámur og áfall við að lenda í slysinu.

Tengivagn vörubílsins liggur þversum á veginum og segir lögreglan að töluverðan tíma geti tekið að opna veginn aftur þar sem stórvirkar vinnuvélar þarf til að færa tengivagninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×