Vilja upplýsingar um framgöngu lögreglu gagnvart stóriðjumótmælendum 8. apríl 2008 22:05 Frá aðgerðum Saving Iceland við álverið í Straumsvík í fyrra.
Þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram beiðni um skýrslu frá dómsmálaráðherra á Alþingi þar sem upplýst verði um framgöngu lögreglu gagnvart mótmælendum Kárahnjúkavirkjunar og stóriðjuframkvæmda á árunum 2005, 2006 og 2007. Vilja þingmennirnir bæði fá upplýsingar um aðgerðir lögreglu gagnvart mótmælendum sem dvöldust á virkjunarsvæði við Kárahnjúka og í námunda við álverslóðina í Reyðarfirði. Þá er einnig óskað upplýsinga um aðgerðir lögreglu gagnvart mótmælendum á Snorrabraut 14. júlí í fyrra og við álver Alcan í Straumsvík í sama mánuði. Enn fremur vilja þingmennirnir að tilgreindar verði heimildir fyrir því inngripi sem lögregla þarf lögum samkvæmt heimildir dómstóla til að framkvæma, eins og húsleitarheimildir og hleranir á símum og tölvupósti. Fram kemur í greinargerð með beiðninni að markmiðið með henni sé að kanna hvort lögregluaðgerðir gegn mótmælendum hafi staðist ákvæði stjórnarskrár og laga um hugsana- og skoðanafrelsi, tjáningarfrelsi, persónufrelsi og friðhelgi einkalífs. Hafa beri í huga að fundafrelsi sé meðal stjórnmálalegra réttinda sem viðurkennd séu og heimila mönnum að efna til funda, þar með talið mótmælafunda. Það sé því mikilvægt í lýðræðisþjóðfélagi að borgararnir fái notið þeirra réttinda, með öðrum orðum að mannréttindi þeirra séu viðurkennd og vernduð. Þá er vísað til þess að í fjölmiðlum hafi ítrekað komið fram ásakanir ásakanir á hendur lögreglu um harðræði, tilefnislausar árásir, eftirför og frelsissviptingu. ,,Í málsvörn sinni hefur lögreglan m.a. vísað til 15. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996, þar sem kveðið er á um heimild lögreglu til að hafa afskipti af borgurunum til að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu, en í fjölmiðlum hafa komið fram áleitnar efasemdir um að mat lögreglu á aðstæðunum hafi í öllum tilfellum verið með þeim hætti að það kallaði á aðgerðir þær sem beitt var," segir í greinargerðinni.
Mest lesið Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Sjá meira