Gagnrýndi fyrirvaralausan stuðning við eldflaugavarnakerfi 8. apríl 2008 15:22 MYND/GVA
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, gagnrýndi harðlega fyrirvaralausan stuðning íslenskra stjórnvalda við þau áform Bandaríkjamanna að koma upp eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu. Í umræðum um utanríkis- og alþjóðamál gagnrýndi Steingrímur að ekki væri innistæða fyrir þeim orðum utanríkisráðherra að kynna til sögunna nýja utanríkismálastefnu.Steingrímur fjallaði nokkuð um leiðtogafund NATO í Búkarest í síðustu viku og vék sérstaklega að stuðningnum við eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjanna. Spurði hann hvenær sú stefna hefði verið mörkuð að styðja þetta geysilega umdeilda mál og hvenær það hefði verið útkljáð á vettvangi Samfylkingarinnar.Sagði hann að með áformum Bandaríkjanna væri að vissu leyti verið að færa Evrópu 30 ár aftur í tímann. Bandaríkin hefðu í krafti þess að geta haldið áfram stjörnustríðsuppbyggingu sinni sagt upp afvopnunarsamningi og boðað ratstjárstöðvar í Tékklandi og eldflaugar í Póllandi. Rússar hefðu svarað með því að segja upp samningi um takmörkun vígbúnaðar í Evrópu og boðuðu aukinn vígbúnað. Því væru menn að færast inn í nýtt vígbúnaðarkapphlaup.Skrapp út úr einkaþotunni og skammaði RússaSpurði Steingrímur hvort Ísland ætti sem friðelskandi þjóð að stilla sér upp við hlið haukanna í Bandaríkjunum og þá gagnrýndi hann að ekki hefði verið rætt við utanríkismálanefnd um þetta mál. Þá vakti hann máls á því að því hefði verið komið til fjölmiðla að Geir H. Haarde forsætisráðherra hefði skammað Rússa fyrir flug herþotna í nágrenni Íslands. „Hann skrapp út úr einkaþotunni og skammaði Rússa," sagði Steingrímur og sagði þetta minna á fyrri tíma.Þá gagnrýndi hann að aukið fé yrði lagt til hernaðarmála hér á landi. Í staðinn fyrir ameríkaniseringu þar sem allt hefði snúist um að trúa á varnarliðið hér á landi hefði komið NATO-væðing og hervæðing íslenskrar utanríkisþjónustu. Spurði hann hver væri hinn eiginlegi óvinur Íslands og sagði menn helst hafa nefnt olíuskip. Varla þyrfti herþotur til þess að verjast þeim. Sagði hann mönnum nær að líta sér nær og búa almennilega að lögreglu og björgunarsveitum og viðbúnaði vegna náttúruhamfara.Steingrímur sagði engan ágreining um það að Ísland ætti að hafa sjálfstæða utanríkisstefnu en það væri ágreiningur um inntakið í stefnunni, hvar Ísland ætti að skipa sér í sveit. Þá sagði hann að hið nýja NATO væri ekki varnarbandalag heldur léti það til sín taka í fjarlægum heimshlutum sem árásaraðili.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira