Húsfyllir á fyrirlestri Gores í Háskólabíói 8. apríl 2008 10:03
Al Gore, Nóbelsverðlaunahafi og fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, heldur sem stendur erindi í fullu Háskólabíói um loftlagsmál. Fyrirlesturinn hófst um hálfníu í morgun og var fjölmiðlum heimilað að taka myndir við upphaf fundarins. Hins vegar var þeim vísað út þegar Gore hóf mál sitt og fór yfir þá vá sem hann telur mannkyni stafa af loftlagsbreytingum. Áður en Gore steig í pontu flutti Lárus Welding, forstjóri Glitnis, stutt ávarp, en Gore er hingað kominn á vegum forseta Íslands og er fyrirlesturinn samstarf Glitnis og Háskóla Íslands. Enn fremur flutti Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, inngangsorð að fyrirlestri Gores og lýsti mannkostum hans. Sagði forsetinn að Gore væri meðal merkustu Bandaríkjamanna samtímans og einn af fyrstu leiðtogum heimsins á 21. öldinni. Hann sýndi hvað hægt væri að gera með skýrri sýn og festu. Lauk hann orðum sínum á því að lýsa Gore sem frábærri mannveru en Ólafur Ragnar og Gore hafa þekkst í allnokkurn tíma.„Ég er Al Gore og var næsti forseti Bandaríkjanna“Ólafur Ragnar Grímsson fór fögrum orðum um vin sinn, Al Gore.MYND/Stöð 2Gore var tekið með dynjandi lófaklappi þegar hann gekk á sviðið og byrjaði á því að þakka fyrir sig á íslensku. Þá fór hann nokkrum orðum um hátíðarkvöldverðinn á Bessastöðum í gær og sagði Ólaf Ragnar Grímsson eina forsetann í heiminum sem hefði skipulagt kvöld með átta fyrirlestrum um hnattræna hlýnun. Vöktu þau ummæli nokkra kátínu. Þá sagði hann að honum þætti mikið koma til framlags Íslendinga í rannsóknum og verkfræði tengdri loftlagsbreytingunum.Enn fremur sagði hann hina frægu setningu sína: „Ég er Al Gore og var næsti forseti Bandaríkjanna." Þegar salurinn hló að því sagði Gore í léttum tón: „Mér finnst þetta ekkert fyndið."Sem fyrr segir var fjölmenni í stóra sal Háskólabíós. Meðal þeirra sem hlýða á erindi Gores eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra, Kristján L. Möller samgönguráðherra og umhverfisráðherrann Þórunn Sveinbjarnardóttir. Þá var Ólafur F. Magnússon borgarstjóri á fyrirlestrinum og aðstoðarkona hans, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira