Hefur sárasjaldan notað einkaflugvél á ráðherraferli 7. apríl 2008 15:33 MYND/Vilhelm
Til harðra orðaskipta kom á milli Geirs H. Haarde forsætisráðherrra og Ögmudnar Jónassonarm, þingflokksformanns Vinstri - grænna, við upphaf þingfundar í dag vegna einkaflugvélamála. Sagðist ráðherra aðeins hafa notað slíkan fararmáta sárasjaldan. Ögmundur kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar í dag og benti á fréttir af því að Geir H. Haarde forsætisráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra væru á leið til útlanda í einkaflugvél. Það gerðist nokkrum dögum eftir að fréttir hefðu borist af forsætisráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra í ferð til Búkarest á leiðtogafund, en þangað fóru þau einnig í einkaflugvél. Hvaða skilaboð felast í einkavélunum? Gagnrýndi Ögmundur pukur í tengslum við ferðirnar. Sagði hann forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa réttlætt flottræfilsháttinn á þann hátt að verið væri að spara tíma og auka hagræði. Benti Ögmundur á að þetta gæti átt við alla landsmenn. Spurði hann hvaða skilaboð fælust í þessu varðandi umhverfismál og efnahagsmál, nú þegar erfiðleikar væru í efnahagsmálum og verðbólga ekki hærri í hálfan annan áratug. Spurði hann hvort þetta væri nýr ferðamáti ráðherra. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði þau skilaboð send með þessu að fara vel með með fjármuni og tíma. Það væri algjör fjarstæða að tala um pukur. Benti hann á að fjölmiðlum hefði verið boðið með í ferðina í síðustu viku. Þá sagði hann að hann og Björgvin væru á leið til Norður-Svíþjóðar en þangað væru ekki greiðar almannasamgöngur. Spurningin væri um að eyða í þetta tveimur dögum eða fjórum. Sagðist Geir hafa setið í ríkisstjórn í tíu ár og enn lengur á þingi og sárasjaldan hefði hann séð sig knúinn til þess að nýta þennan flutningsmáta. Sagði hann það dæmalausa lágkúru hjá Vinstri - grænum að draga málin fram eins og flokkurinn hefði gert að undanförnu. Gaggar eins og hæna úr sæti Ögmundur svaraði því til að nú vissu menn hver skilaboðin væru. Það væru skilaboðin um húsbændur og hjú. Íslendingar gætu staðið frammi fyrir erfiðleikum í efnahagsmálum og þá þyrfti að skapa samstöðu. Það þyrfti að gera með stjórnarathöfnum og breytni. Ríkisstjórnin legði ekki áherslu á það sem sameinaði og sýndi ráðdeild heldur veldi það sem helst væri táknrænt um misskiptingu í samfélaginu. Forsætisráðherra benti á að Ögmundur færi enn með frasann um húsbændur og hjú. Þetta snerist auðvitað um að fara vel með opinbert fé. Ráðherrar þyrftu að leggja á sig ferðalög annað slagið. Kom svo til orðaskipta milli Geirs og Ögmundar sem sat úti í sal og lauk þeim með því að Geir sakaði Ögmund um að gagga eins og hæna úr sæti sínu.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira