Með 130 grömm af marijúana í skottinu 7. apríl 2008 14:36
Allmörg fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á föstudag og um helgina að því er fram kemur í tilkynningu frá embættinu. Á föstudag fundust ætluð fíkniefni við húsleit í Kópavogi. Á sama stað fannst einnig þýfi og var því komið aftur í réttar hendur. Þrír piltar um tvítugt voru handteknir vegna rannsóknar málsins. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði. „Sama dag var bíll stöðvaður á Miklubraut en farþegi í honum var með hass í fórum sínum," segir einnig. „Á föstudagskvöld veittu lögreglumenn athygli bíl í miðborginni. Í farangursgeymslu hans reyndust vera um 130 grömm af því sem talið er vera marijúana. Umráðamaður bílsins, hálfþrítugur karl, var handtekinn. Skömmu síðar var karl á svipuðum aldri handtekinn á öðrum stað í miðborginni en sá var líka með ætlað marijúana í fórum sínum." Þá segir einnig að aðfaranótt laugardags hafi 17 ára piltur verið stöðvaður í Háaleitishverfi en sá var með ætlað kókaín í fórum sínum. „Pilturinn var færður á lögreglustöð en þangað var hann sóttur af móður sinni nokkru síðar. Um svipað leyti hafði lögreglan afskipti af 19 ára pilti í sama hverfi en sá var með ætlað afmetamín í fórum sínum. Á laugardagskvöld handtók lögreglan karl um þrítugt en sá hafði látið ófriðlega á öldurhúsi í miðborginni. Við öryggisleit á manninum fundust bæði ætluð fíkniefni sem og hnífur." Að endingu er þess getið að í nótt hafi tæplega þrítugur karl handtekinn í miðborginni fyrir fíkniefnamisferli. „Sá var með nokkrar neyslupakkingar í fórum sínum en talið er að um sé að ræða amfetamín."
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira