Össur á þönum í Jemen 7. apríl 2008 12:35 Össur og Ali Mojawar, forsætisráðherra Jemens.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur í dag og í gær átt níu einkafundi með ráðherrum í ríkisstjórn Jemens en þar er hann til þess að ræða ýmis mál. Össur fundaði með forsætisráðherrandum Ali Mojawar í höfuðborginni Sanaa í dag og þar var meðal annars rætt um framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og samvinnu Íslendinga og Jemena um nýtingu jarðhita, jarðskjálftarannsóknir, samstarf og þjálfun á sviði fiskveiða og fiskvinnslu. Forsætisráðherrann fagnaði aukinni samvinnu og sagðist myndu ræða framboð Íslands við utanríkisráðuneyti sitt með það í huga að Jemen myndi styðja Ísland. Í tilkynningu frá iðnaðaráðuneytinu segir að Össur hafi í gær flutt erindi um jarðskjálftarannsóknir og virkjun jarðhita við opnun á fimmtu Flóaráðstefnunni um jarðvísindi sem haldin er þessa dagana. Í máli sínu vakti ráðherra sérstaka athygli á þeim viðvörunarkerfum sem íslenskir vísindamenn hafa þróað til þess að segja fyrir um yfirvofandi jarðskjálfta og flóð undan jökli af völdum eldgosa. Þá var iðnaðarráðherra í gær ásamt orkuráðherra Jemena, Mustafa Bahran, viðstaddur undirritun samnings milli Reykjavík Energy Invest og Rafveitu Jemena um frekari rannsóknir á Dahmar-svæðinu í nágrenni við höfuðborgina Sanaa vegna 100 megavatta jarðhitavirkjunar. „Í Jemen er mikill orkuskortur og hafa stjórnvöld verulegan áhuga á að virkja óbeislaðan jarðhita sem þar er í miklum mæli. Forsætisráðherra Jemens telur að Jemenar geti fetað í fótspor Íslands við nýtingu jarðhita," segir í tilkynningu iðnaðaráðuneytisins.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira