Ráðherra svarar landeigendum 7. apríl 2008 12:24 Árni Mathiesen fjármálaráðherra.
Vísi hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá fjármálaráðuneytinu: „Í tilefni af umfjöllun um þjóðlendukröfur ríkisins á sunnanverðu Mið-Norðurlandi vill fjármálaráðherra koma eftirfarandi á framfæri: Fullyrðingar í fjölmiðlum undanfarna daga, um að kröfulýsingarnar nú samræmist ekki áðurframkomnum yfirlýsingum ráðherra um kröfugerð í þjóðlendumálum eru rangar. Við kröfugerð á svæði því sem nú er tekið til meðferðar hefur fjármálaráðherra tekið mið af niðurstöðum óbyggðanefndar og dómstóla í málum sem gengið hafa á undanförnum misserum. Kröfugerðin er í samræmi við þá afstöðu sem ríkið tók með ákvörðunum sínum um síðustu áramót, um að falla frá málshöfðun vegna mála á Norð-Austurlandi, t.d. vegna svokallaðra Smjörfjalla, svo og í Esjumálum. Að mati fjármálaráðherra felur það í sér að kröfugerð á núverandi svæði er mun afmarkaðri en áður hefur verið talin þörf á. Meginstefna ríkisins við kröfulýsingar er að fylgja merkjalýsingum jarða við ákvörðun marka milli eignarlanda og þjóðlendna, en merkjum flestra jarða á svæðinu er lýst í landamerkjabréfum þeirra. Svæðið sem nú er til meðferðar nær til stórs hluta hálendis Íslands á sunnanverðu Norðurlandi, þ.e. tekur til afréttarsvæða sem nefnd eru Nýjabæjarafréttur, Hofsafréttur og Eyvindarstaðaheiði. Hæstiréttur Íslands hefur í dómum sínum þegar fjallað um tvö af þessum afréttarsvæðum og hefur hafnað því að svæðin teljist til eignarlanda tiltekinna jarða. Kröfugerð ríkisins nú tekur mið af þeim sjónarmiðum sem á er byggt í þessum dómum Hæstaréttar. Í því felst að ekki er fallist á að slík svæði falli undir beinan eignarrétt. Afréttareign jarða eða sveitarfélaga á umræddum svæðum er hins vegar lítt eða ekki umdeild og kröfugerð ríkisins breytir engu um þau réttindi sem jörðum hafa tilheyrt að þessu leyti á svæðinu. Fjármálaráðherra gerði á síðasta ári tillögur um breytingar á verklagi við kröfulýsingar af hálfu ríkisins og hafa sumar af þeim þegar komist í framkvæmd. Kröfugerð nú tekur þannig til mun afmarkaðra svæðis en upphaflega var ráðgert og því er farið hægar í sakirnar en ella hefði orðið. Af því leiðir jafnframt að unnt er við kröfugerð að taka mið af niðurstöðu mála á öðrum svæðum og niðurstöðum dómstóla sem máli skipta. Rétt er að halda því til haga að við kröfugerð nú var, að mati ríkisins, í öllum tilfellum stuðst við þinglýst landamerki, nema þar sem þinglýsingar ná upp til jökla eða almenninga, enda hefur Hæstiréttur ekki fallist á slíkar kröfur fram til þessa. Kröfugerðin nú tekur fullt tillit til athugasemda sem gerðar voru við meðferð þjóðlendumála af hálfu ríkisins og til samræmis við yfirlýsingar ráðherra að þessu leyti. Eðli þjóðlendumála er hins vegar þannig að ágreiningur getur verið um tiltekin svæði eða afmörkun þjóðlendna í einstaka tilvikum. Slíkt liggur í hlutarins eðli og hefur fjármálaráðherra hvergi sagt að aldrei kæmu upp álitamál í þessum efnum. Þeirri málsmeðferð sem hefst með kröfulýsingum ríkisins er hins vegar ætlað að greiða úr þeim ágreiningi, í samræmi við lög um þjóðlendur."
Mest lesið „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Innlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent Grunaður um stórfellda líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna Sjá meira