Rannsaka hvort brennuvargur leiki lausum hala 7. apríl 2008 12:24
Slökkviliðsmenn af höfuðborgarsvæðinu björguðu átta hrossum á síðustu stundu út úr logandi hesthúsi við Sörlaskjól, ofan við Hafnarfjörð, eftir að einhver kveikti í húsinu. Þetta gerðist laust fyrir klukkan fjögur í nótt og sakaði hrossin ekki þótt talsverður reykur hafi verið orðinn í húsinu. Það var lán í óláni að eldvarnaveggur var á milli rýmisins, sem kveikt var í, og rýmisins, sem hrossin voru í. Svo voru slökkviliðsmennirnir skammt undan að slökkva eld, sem kveiktur hafði verið í mannlausum stolnum bíl, þegar fregnir bárust af eldinum í hesthúsinu. Voru þeir því fljótir á vettvang. Lögregla telur fullvíst að kveikt hafi verið í bílnum og hesthúsinu en enginn sérstakur liggur undir grun. Þessar íkveikjur bætast við margar aðrar á höfuðborgarsvæðinu síðustu tvær til þrár vikurnar, einkum í mannlausum bílum. Lögregla rannsakar meðal annars hvort tengsl geti verið á milli þeirra og jafnvel hvort sjúkur brennuvargur leiki lausum hala.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira